Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2151–2200 af 3887
    Raða eftir:
    21. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    799/2019. Úrskurður frá 14. júní 2019

    Kærð var synjun Seðlabanka Íslands á beiðni um upplýsingar um tilfærslu listaverka í eigu bankans. Samkvæmt skýringum Seðlabankans lágu engin gögn fyrir í málinu og af þeirri ástæðu væri bankanum ómögulegt að verða við beiðni kæranda. Úrskurðarnefnd taldi ekki ástæðu til að draga þær skýringar í efa og var málinu því vísað frá.

    21. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    798/2019. Úrskurður frá 14. júní 2019

    Kærð var afgreiðsla Vegagerðarinnar á beiðni um tilteknar upplýsingar um vöruflutninga um hafnir Íslands og um eftirlit stofnunarinnar með skráningu slíkra upplýsinga. Vegagerðin kvaðst hafa afhent kæranda allar fyrirliggjandi upplýsingar. Úrskurðarnefnd taldi ekki ástæðu til að draga þá fullyrðingu í efa og vísaði því málinu frá.

    21. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    797/2019. Úrskurður frá 14. júní 2019

    Kærð var synjun Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs. á beiðni um aðgang að lögfræðiáliti. Synjunin byggðist á því að um vinnugagn væri að ræða, sbr. 8. gr. upplýsingalaga, og að álitið gæti fallið undir 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga, sem heimilar takmörkun aðgangs að bréfaskriftum stjórnvalda við sérfróða aðila til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt máli skuli höfðað. Úrskurðarnefndin taldi skilyrði ofangreindra undanþága frá upplýsingarétti almennings ekki uppfyllt og var Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita því gert að veita aðgang að lögfræðiálitinu.

    21. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    796/2019. Úrskurður frá 14. júní 2019

    Kærð var afgreiðsla Sjúkratrygginga Íslands á beiðni um ýmis gögn er vörðuðu offitumeðferðir á Reykjalundi. Fram kom að SÍ hefði afhent kæranda ákveðin gögn í málinu en að engin önnur gögn sem heyrðu undir beiðni kæranda væru í vörslum stofnunarinnar. Úrskurðarnefndin taldi ekki ástæðu til að draga þá fullyrðingu í efa og vísaði málinu því frá.

    21. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    795/2019. Úrskurður frá 14. júní 2019

    Kærð var synjun Landspítala-Háskólasjúkrahúss á beiðni um upplýsingar um framkvæmd magahjáveitu- og magaermisaðgerða á tilteknu tímabili. LSH kvað ekkert fyrirliggjandi gagn svara öllum þeim atriðum sem fyrirspurnin sneri að heldur þyrfti að sækja upplýsingarnar sérstaklega í sjúkraskrár sem væri óheimilt samkvæmt lögum um sjúkraskrár, nr. 55/2009. Þar sem ekki lá fyrir synjun á beiðni um afhendingu gagna í skilningi 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga, var málinu vísað frá.

    20. jún. 2019Forsætisráðuneytið

    Allt að 900 milljónir á þremur árum fari í rannsóknir um samfélagslegar áskoranir: umhverfismál og sjálfbærni, heilsu og velferð og tæknibreytingar

    Auglýst verður eftir umsóknum um styrki í markáætlun um samfélagslegar áskoranir fyrir allt að 300 m.kr. árlega á komandi árum. Vísinda – og tækniráð samþykkti tillögu forsætisráðherra um þetta á fundi sínum í Norræna húsinu í dag.

    20. jún. 2019Forsætisráðuneytið

    Ný lög um Seðlabanka Íslands

    Alþingi hefur samþykkt ný lög um Seðlabanka Íslands. Með lögunum sameinast Seðlabanki Íslands og Fjármálaeftirlitið í eina stofnun frá og með næstu áramótum

    20. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Heimsmarkmiðin, Dómsmálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Sameinuðu þjóðirnar birta landsrýniskýrslu Íslands um heimsmarkmiðin

    Sameinuðu þjóðirnar hafa birt á vef sínum skýrslu íslenskra stjórnvalda um innleiðingu heimsmarkmiðanna.

    20. jún. 2019Rit og skýrslur, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Iceland's Implementation of the 2030 Agenda for Sustainable Development

    Sameinuðu þjóðirnar hafa birt á vef sínum skýrslu íslenskra stjórnvalda um innleiðingu heimsmarkmiðanna. Skýrslan er hluti af landsrýni Íslands á stöðu innleiðingar heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

    19. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Tillögur um bætta réttarstöðu brotaþola kynferðisofbeldis ræddar á fundi ráðherranefndar um jafnréttismál

    Tillögur um bætta réttarstöðu brotaþola kynferðisofbeldis voru til umfjöllunar á ráðherranefndarfundi um jafnréttismál í dag.

    19. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir danskt-íslenskt vísindasamstarf

    Í tilefni af 75 ára afmæli lýðveldisins samþykkti ríkisstjórnin á fundi sínum í morgun að veita 8,6 millj. kr. af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til verkefnis, tengdu Nesstofu við Seltjörn, til að standa straum af átaki til að efla og heiðra danskt-íslenskt vísindasamstarf.

    19. jún. 2019Forsætisráðuneytið

    Úthlutað úr Jafnréttissjóði Íslands

    Styrkjum úr Jafnréttissjóði Íslands fyrir árið 2019 var úthlutað við hátíðlega athöfn í Hörpu í dag.

    18. jún. 2019Forsætisráðuneytið

    Ísland í fremstu röð í málefnum hinsegin fólks eftir samþykkt lagafrumvarps forsætisráðherra á Alþingi

    Lagafrumvarp Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, um kynrænt sjálfræði var samþykkt á Alþingi í dag. Með samþykkt laganna er staðfestur með lögum réttur einstaklings til að breyta opinberri kynskráningu sinni í samræmi við eigin upplifun og án þess að þurfa að sæta skilyrðum um sjúkdómsgreiningu og læknismeðferð.

    18. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Viljayfirlýsing stjórnvalda, stóriðjunnar og Orkuveitu Reykjavíkur um hreinsun og bindingu kolefnis

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og forstjórar/fulltrúar Orkuveitu Reykjavíkur, Elkem, Fjarðaáls, Rio Tinto á Íslandi og Norðuráls undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um kolefnishreinsun og -bindingu.

    18. jún. 2019Forsætisráðuneytið

    3200 manns heimsóttu opið hús í Stjórnarráðinu

    Um 3200 manns heimsóttu opið hús í Stjórnarráðinu sem var hluti sérstakrar hátíðardagskrár í tilefni af 75 ára afmæli lýðveldisins í gær. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, stóð vaktina hluta dagsins og tók á móti gestum inni á skrifstofu sinni.

    17. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Menningarmál

    Ávarp forsætisráðherra á 75 ára afmæli lýðveldisins, 17. júní 2019

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, talaði um þær breytingar sem hafa orðið á samfélaginu síðast liðin 75 ár í ávarpi sínu á Austurvelli á 75 ára afmæli lýðveldisins, 17. júní 2019.

    15. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Innviðaráðuneytið

    Nýr Herjólfur formlega nefndur og afhentur Vestmannaeyingum

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, voru við móttökuathöfn í Friðarhöfninnu í Vestmannaeyjum í dag þar sem nýr Herjólfur var afhentur Vestmannaeyingum.

    14. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Menningarmál

    Hátíðardagskrá í tilefni af 75 ára afmæli lýðveldisins 17. júní 2019

    Þingfundur ungmenna, opin hús, sérstök dagskrá í Þjóðminjasafninu og Lýðveldiskaka um land allt á 75 ára afmæli lýðveldisins

    12. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Utanríkismál

    Forsætisráðherra fundar með forseta Þýskalands

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með Frank-Walter Steinmeier, forseta Þýskalands, í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í dag.

    12. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Lög og réttur

    Frumvarp um vandaða starfshætti í vísindum samþykkt

    Frumvarp forsætisráðherra um vandaða starfshætti í vísindum var samþykkt á Alþingi í gær. Lögunum er ætlað að stuðla að því að rannsóknir fari fram í samræmi við siðferðisviðmið og auka þannig trúverðugleika vísindastarfs og rannsókna í samfélaginu.

    12. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins, Lög og réttur

    Lagabreytingar á sviði tjáningarfrelsis og upplýsingaréttar

    Alþingi hefur samþykkt frumvörp forsætisráðherra um breytingar á stjórnsýslu- og upplýsingalögum.

    11. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Öryggis- og varnarmál, Formennska Íslands 2019

    Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins í heimsókn á Íslandi

    Öryggismál á Norður-Atlantshafi, fyrirhuguð verkefni Íslands í Kosovo, norrænt öryggismálasamstarf og fjölþátta ógnir voru aðalumræðuefnin á fundum Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra, með Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Stoltenberg er staddur hér á landi í heimsókn í boði forsætisráðherra.

    11. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    794/2019. Úrskurður frá 31. maí 2019

    Kærð var töf mennta- og menningarmálaráðuneytisins á afgreiðslu beiðni kæranda um rökstuðning og gögn vegna ráðningar í starf þjóðskjalavarðar. Kærandi var meðal umsækjenda um embættið og því aðili stjórnsýslumáls í skilningi stjórnsýslulaga. Þar sem um aðgang kæranda að upplýsingum um málið færi eftir stjórnsýslulögum, og félli þar af leiðandi utan gildissviðs upplýsingalaga, var kærunni vísað frá.

    11. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    793/2019. Úrskurður frá 31. maí 2019

    Kærð var synjun Sýslumannsins á Vestfjörðum á beiðni kæranda um aðgang að gögnum sem sýndu fram á hver hefði fengið líftryggingarbætur eftir mann sem lést árið 1900. Kæran barst rúmlega fimm mánuðum eftir að kærufrestur skv. 1. mgr. 22. gr. upplýsingalaga rann út. Úrskurðarnefndin taldi skilyrði 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga ekki uppfyllt og var kærunni því vísað frá.

    11. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    792/2019. Úrskurður frá 31. maí 2019

    Blaðamaður kærði synjun Seðlabanka Íslands á beiðni um aðgang að gögnum sem vörðuðu rannsókn bankans á meintum brotum útgerðarfélagsins Samherja hf. á lögum um gjaldeyrismál. Úrskurðarnefndin fór yfir umbeðin gögn og taldi hafið yfir vafa að þau hefðu að geyma upplýsingar um hagi viðskiptamanna bankans og væru undirorpin sérstakri þagnarskyldu, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 36/2001, sem gengi framar rétti almennings til aðgangs að upplýsingum samkvæmt upplýsingalögum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laganna. Úrskurðarnefndin staðfesti því synjun Seðlabanka Íslands.

    11. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    791/2019. Úrskurður frá 31. maí 2019

    Kærleikssamtökin, f.h. A, kærðu afgreiðslu Kópavogsbæjar á beiðni kæranda um aðgang að gögnum varðandi A. Kæranda höfðu verið afhent gögn um A en töldu að afhendingin hefði verið ófullnægjandi þar sem enn vantaði tiltekin gögn. Í umsögn Kópavogsbæjar vegna kærunnar kom fram að sveitarfélagið hefði þegar afhent öll fyrirliggjandi gögn sem féllu undir gagnabeiðni kæranda. Úrskurðarnefndin taldi ekki ástæðu til að draga þá fullyrðingu í efa og vísaði því málinu frá.

    11. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    790/2019. Úrskurður frá 31. maí 2019

    Blaðamaður kærði afgreiðslu Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf. á beiðni kæranda um gögn vegna kaupa félagsins á lögfræðiþjónustu á nánar tilgreindu tímabili. Á þeim tíma sem kæran barst var félagið undanþegið gildissviði upplýsingalaga, sbr. 3. mgr. 2. gr. laganna auk auglýsingar forsætisráðherra, nr. 1107/2015, og var málinu því vísað frá.

    11. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    789/2019. Úrskurður frá 31. maí 2019

    Kærð var afgreiðsla Tryggingastofnunar á beiðni kæranda um aðgang að persónuupplýsingum um sig. Í umsögn Tryggingastofnunar kom fram að stofnunin hefði veitt kæranda aðgang að öllum þeim gögnum sem hefðu að geyma upplýsingar um kæranda. Úrskurðarnefnd hafði ekki forsendur til að rengja þá fullyrðingu Tryggingastofnunar að ekki hefðu verið frekari upplýsingar um kæranda í fórum stofnunarinnar þegar beiðni kæranda barst. Var málinu því vísað frá.

    11. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    788/2019. Úrskurður frá 31. maí 2019

    Kærð var afgreiðsla Tryggingastofnunar á beiðni kæranda um aðgang að gögnum sem vörðuðu son hans. Í umsögn TR kom fram að stofnunin hefði þegar veitt kæranda aðgang að gögnunum að undanskildum þeim hluta þeirra sem stofnunin taldi varða einkamálefni barnsmóður kæranda. Úrskurðarnefnd hafði ekki forsendur til að rengja þá fullyrðingu að ekki höfðu verið frekari upplýsingar um son kæranda í fórum stofnunarinnar þegar beiðni kæranda barst. Úrskurðarnefndin vísaði því þeim hluta málsins frá. Einnig var deilt um hvort Tryggingastofnun skyldi veita kæranda upplýsingar varðandi son sinn jafnóðum og þær yrðu til eða þær bærust stofnuninni. Þar sem ekki væri um að ræða fyrirliggjandi gögn í skilningi upplýsingalaga var þeim hluta málsins einnig vísað frá úrskurðarnefnd.

    11. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    787/2019. Úrskurður frá 31. maí 2019

    Kærð var synjun umboðsmanns skuldara á beiðni kæranda um aðgang að upplýsingum um skuldir fyrrverandi maka. Kæran barst rúmum þremur árum eftir að kærufrestur skv. 1. mgr. 22. gr. upplýsingalaga rann út. Úrskurðarnefnd taldi skilyrði ákvæðis 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, ekki vera uppfyllt þar sem hvorki teldist afsakanlegt að kæran hefði ekki borist fyrr né að veigamiklar ástæður mæltu með því að kæran yrði tekin til meðferðar. Var kærunni því vísað frá úrskurðarnefnd.

    11. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    786/2019. Úrskurður frá 31. maí 2019

    Kærð var synjun sveitarfélags á beiðni kæranda um aðgang að lögfræðiáliti sem lagt var fram á fundi bæjarráðs. Kærandi hafði óskað eftir endurgreiðslu frá sveitarfélagsinu vegna meintrar ofgreiðslu opinberra gjalda og við afgreiðslu málsins hafði sveitarfélagið leitað álits lögfræðings. Úrskurðarnefnd taldi að sú ákvörðun sveitarfélagsins að hafna endurgreiðslukröfu kæranda teldist vera stjórnvaldsákvörðun. Því færi um rétt kæranda til aðgangs að gögnum sem tilheyrðu stjórnsýslumálinu eftir ákvæðum stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Kæran féll þar af leiðandi utan gildissviðs upplýsingalaga og var henni vísað frá.

    11. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    785/2019. Úrskurður frá 31. maí 2019

    Deilt var um afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á beiðni kæranda um aðgang að samningi sveitarfélagsins við Íslenskar heilsulindir ehf. vegna könnunar á fýsileika þess að gert yrði baðlón í Vestmannaeyjum. Í umsögn Vestmannaeyjabæjar kom fram að enginn slíkur samningur lægi fyrir. Umsögninni fylgdi bókun frá bæjarráði Vestmannaeyjabæjar þar sem fram kom að gert hefði verið samkomulag um samstarf við Íslenskar heilsulindir. Úrskurðarnefnd taldi að þrátt fyrir að gagnabeiðni kæranda hefði verið orðuð þannig að óskað væri eftir „samningi“ hefði kærandi í reynd átt við það samkomulag sem nefnt var í bókun bæjarráðs. Var því lagt fyrir Vestmannaeyjabæ að taka beiðni kæranda til nýrrar meðferðar.

    11. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    784/2019. Úrskurður frá 31. maí 2019

    Deilt var um þá ákvörðun Vestmannaeyjabæjar að synja kæranda um aðgang að minnisblaði stýrihóps sem hafði farið fyrir viðræðum við íslenska ríkið um samning Vestmannaeyjabæjar og Vegagerðarinnar um rekstur Herjólfs. Vestmannaeyjabær vísaði til þess að minnisblaðið væri ekki opinbert og heyrði ekki undir upplýsingalög. Í ljósi þess að Vestmannaeyjabær væri stjórnvald sem heyrði undir upplýsingalög taldi úrskurðarnefnd ekki vafa leika á því að umrætt minnisblað félli undir lögin og því þyrfti að afgreiða ósk um aðgang að því í samræmi við ákvæði upplýsingalaga. Var því lagt fyrir Vestmannaeyjabæ að taka beiðni kæranda til nýrrar meðferðar.

    11. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    783/2019. Úrskurður frá 31. maí 2019

    Kærð var synjun Sorpu bs. á beiðni Íslenskra aðalverktaka hf. um gögn í tengslum við tilboð Ístaks hf. í innkaupaferli á vegum Sorpu sem kærandi tók einnig þátt í. Sorpa byggði á því að umbeðin gögn væru vinnugögn og því undanþegin upplýsingarétti kæranda. Úrskurðarnefndin féllst hvorki á að um vinnugögn væri að ræða né að þau fælu í sér mikilvægar upplýsingar um atvinnu-, framleiðslu- eða viðskiptaleyndarmál sem væru til þess fallnar að valda Ístaki tjóni. Var því lagt fyrir Sorpu að veita kæranda aðgang að gögnunum.

    11. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Skipulagsmál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Hröð og einföld yfirsýn yfir þjónustu um allt land með nýju þjónustukorti

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynntu nýtt gagnvirkt þjónustukort á blaðamannafundi í Þjóðminjasafninu í dag.

    07. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Menningarmál

    Handverk og hönnun hlýtur styrk af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar

    Ríkisstjórnin ákvað að veita 6 m. kr. af ráðstöfunarfé sínu til verkefnisins ,,Handverk og hönnun“ á fundi sínum í morgun. Markmiðið með styrknum er að stuðla að eflingu handverks og listiðnaðar hér á landi.

    04. jún. 2019Forsætisráðuneytið, Neytendamál, Upplýsingatæknimál ríkisins, Lög og réttur

    Skýrsla forsætisráðherra um framkvæmd upplýsingalaga árið 2018

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mun leggja skýrslu um framkvæmd upplýsingalaga árið 2018 fyrir Alþingi og er skýrslan sú fjórða frá árinu 2016.

    31. maí 2019Forsætisráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Stafræn þjónusta efld: Ísland verði meðal fremstu í heiminum

    Aðgerðaáætlun um eflingu stafrænnar þjónustu var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun.

    29. maí 2019Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið, Landbúnaður, Lýðheilsa og forvarnir, Innviðaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ísland í fararbroddi í aðgerðum til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmis

    Ísland ætlar að vera í farabroddi í aðgerðum til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Þá ætla íslensk stjórnvöld, innan ramma alþjóðlegra skuldbindinga og á grundvelli lýðheilsusjónarmiða, að koma í veg fyrir dreifingu matvæla sem í greinast sýklalyfjaónæmar bakteríur.

    29. maí 2019Forsætisráðuneytið, Utanríkismál

    Forsætisráðherra fundar með bandarískri þingmannanefnd

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með bandarískri þingmannanefnd undir forystu Lisu Murkowski í Stjórnarráðinu í dag.

    29. maí 2019Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Forsætisráðuneytið

    Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins heldur fræðslufund um jafnlaunamál í samstarfi við forsætisráðuneytið

    Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) í samstarfi við skrifstofu jafnréttismála í forsætisráðuneytinu hélt fræðslufund um jafnlaunamál 27.-28. maí sl. Megintilgangur fundarins var að ræða aðgerðir Evrópulanda á sviði jafnlaunamála og miðla upplýsingum um lögin um jafnlaunavottun og reynslu Íslendinga af innleiðingu þeirra.

    28. maí 2019Rit og skýrslur, Rekstur og eignir ríkisins, Umhverfi og náttúruvernd, Forsætisráðuneytið, Auðlindir

    Skýrsla forsætisráðherra um málefni þjóðlenda 2019

    Skýrsla forsætisráðherra um ráðstöfun lands og landsréttinda innan þjóðlenda og tekna af gjöldum fyrir slík réttindi

    28. maí 2019Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Stofnun samstarfsvettvangs um loftslagsmál og grænar lausnir

    Samkomulag um samstarfsvettvang stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir var undirritað í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í dag.

    28. maí 2019Dómsmálaráðuneytið, Aðgerðir gegn mansali, Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, Löggæsla, Almannaöryggi, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla og viðbrögð vegna skipulagðrar brotastarfsemi

    Embætti ríkislögreglustjóra hefur nú birt áhættumatsskýrslu greiningardeildar um skipulagða brotastarfsemi á Íslandi en þar kemur fram að skipulögð brotastarfsemi sé alvarlegasta ógn við samfélag og einstaklinga á Íslandi að frátöldum náttúruhamförum.

    27. maí 2019Forsætisráðuneytið

    Vegna umfjöllunar um Guðmundar- og Geirfinnsmálið

    Í tilefni af umfjöllun í fjölmiðlum í dag telur forsætisráðuneytið rétt að fram komi að forsætisráðuneytið hefur ekki fengið skilagrein frá nefnd sem skipuð var til að leiða fyrir hönd stjórnvalda sáttaviðræður við fyrrum sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu sem sýknaðir voru með dómi Hæstaréttar þann 27. september síðastliðinn í endurupptökumáli og aðstandendur þeirra.

    26. maí 2019Forsætisráðuneytið, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Úthlutun úr Barnamenningarsjóði Íslands á degi barnsins

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra voru viðstaddar úthlutun úr Barnamenningarsjóði Íslands fyrir árið 2019 við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu í dag á degi barnsins.

    24. maí 2019Forsætisráðuneytið, Skipulagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Rekstur og eignir ríkisins

    Skýrsla forsætisráðherra um málefni þjóðlendna 2019

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mun leggja fyrir Alþingi skýrslu um ráðstöfun lands og landsréttinda innan þjóðlendna og tekna af gjöldum fyrir slík réttindi og er skýrslan sú sjöunda í röðinni á jafnmörgum árum.

    22. maí 2019Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpar alþjóðlega ráðstefnu á sviði kynjafræða

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók þátt í opnun alþjóðlegrar ráðstefnu á sviði kynjafræða í dag, ásamt Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands, og rappsveitinni Reykjavíkurdætrum.

    22. maí 2019Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók við lotukerfi fjölbreytileikans

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók þátt í upphafsathöfn árvekniátaks um fjölbreytileika í Safnahúsinu á alþjóðlegum degi Sameinuðu þjóðanna um menningarlegan fjölbreytileika.

    21. maí 2019Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ísland hlýtur viðurkenningu fyrir einarða baráttu fyrir jafnrétti

    Ísland hlaut í dag viðurkenningu fyrir einarða baráttu fyrir jafnrétti á norrænu viðskiptaráðstefnunni Womenomics í Kaupmannahöfn en það er í fyrsta sinn sem land eða þjóð hlýtur slíka viðurkenningu. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra tók við viðurkenningunni fyrir hönd Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Hann hélt einnig opnunarávarp á rakarastofuráðstefnu sem haldin var við þetta tækifæri að íslenskri fyrirmynd.

    • First
    • Prev
    • 42
    • 43
    • 44
    • 45
    • 46
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband