23. feb. 2026Dómsmálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið
Minna um vopnaburð og börnum líður betur
Árið 2024 vöktu alvarleg ofbeldismál þar sem börn komu við sögu mikla athygli og áhyggjur almennings. Ný stöðuskýrsla aðgerðahóps stjórnvalda um aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum sýnir jákvæða þróun á ýmsum sviðum og um leið nýjar áskoranir.