Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins
Stefnumótun og samstarf
Stefnumótun og samstarf
Skrifstofa stjórnunar og umbóta fer fyrir stefnumótun í málaflokknum, sem felur í sér alþjóðlegt samstarf um opinbera þjónustu, hagnýtingu nýrrar tækni og áherslur á minnkað kolefnisfótspor í ríkisrekstrinum og áhrif á samfélagið fyrir tilstilli tækni og breytingu á vinnulagi og ferlum.
Stafræn vegferð
Íslensk stjórnvöld hafa lagt áherslu á stafræna þjónustu og aukna stafvæðingu í íslensku samfélagi líkt og kemur fram í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Framþróun í tækni og áhugi almennings á bættri stafrænni þjónustu hefur jafnframt skipt miklu máli