07. nóv. 2016Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir
656/2016. Úrskurður frá 31. október 2016
Deilt var um aðgang eins aðila, að rammasamningi um innkaup vegna hjúkrunarheimila á vegum Framkvæmdasýslu ríkisins, að gögnum um samskipti og samráð við aðra rammasamningshafa. Úrskurðarnefndin féllst ekki á það með Framkvæmdasýslu ríkisins að umbeðin gögn hefðu að geyma upplýsingar um efnahagslega mikilvæga hagsmuni ríkisins eða einkamálefni annarra sem sanngjarnt væri og eðlilegt að leynt færi, utan hluta sem fjallaði m.a. um fyrri notendur og kaupendur þeirra vara sem rammasamningshafar buðu Framkvæmdasýslunni til kaups hverju sinni. Því var fallist á rétt kæranda til aðgangs að þeim hluta sem eftir stóð.