15. maí 2015Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir
582/2015. Úrskurður frá 15. maí 2015
<p>Brit Insurance Limited, Liberty Mutual Insurance Europe Ltd., QBE International Insurance Ltd. og fleiri erlendir vátryggjendur kærðu afgreiðslu Seðlabanka Íslands á beiðni um gögn í í 23 tölusettum liðum. Seðlabanki Íslands tók ákvörðun um að synja kærendum um aðgang að gögnum undir öllum liðunum með bréfi dags. 14. janúar 2014, að frátöldum liðum 2, 7, 8, 14 og 19. Um þá liði segir í ákvörðun Seðlabankans að gögn undir þeim hafi ekki fundist hjá bankanum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki ástæðu til að draga þá staðhæfingu í efa. Því var ekki talin liggja fyrir synjun stjórnvaldsins á afhendingu gagna undir þessum liðum í skilningi 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012, sbr. 1. mgr. 5. gr. og 1. mgr. 15. gr.…