18. des. 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir
A-511/2013. Úrskurður frá 13. desember 2013
<p>A kærði afgreiðslu Ríkiskaupa á beiðni hans um gögn. Kæran laut efnislega að sömu gögnum og hann hafði áður óskað eftir að fá frá landlækni – og nefndin hafði úrskurðað um þá ósk (sjá A-430/2012, A-431/2012 og A-433/2012). A taldi hins vegar að misbrestir hefðu orðið á því hjá landlækni að afhenda gögn samkvæmt þeim úrskurðum. Því hafði hann snúið sér til Ríkiskaupa, sem einnig höfðu gögnin undir höndum, en fengið synjun. Þá synjun kærði hann til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Hún kvað menn eiga rétt á að óska eftir sömu gögnum hjá öðru stjórnvaldi, sem einnig hefði þau í vörslu sinni, m.a. til að ganga úr skugga um að þau væru eins hjá báðum stjórnvöldum, og lagði fyrir Ríkiskaup að afhenda A umrædd gögn.</p>