13. des. 2018Dómsmálaráðuneytið, Kærunefnd útlendingamála, Úrskurðir
Nr. 562/2018 Úrskurður
Réttaráhrifum úrskurða kærunefndar útlendingamála í málum aðila, dags. 20. nóvember 2018, er frestað á meðan aðilar reka mál sín fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegum ákvörðunum í málum sínum á stjórnsýslustigi. Frestun réttaráhrifa úrskurðanna er bundin því skilyrði að aðilar beri málin undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar þessarar og óski eftir flýtimeðferð. Sé beiðnum um flýtimeðferð synjað skal þá höfða mál innan sjö daga frá þeirri synjun.