07. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Dómsmálaráðuneytið
Utanríkisráðherra Namibíu í heimsókn á Íslandi
Netumbo Nandi-Ndaitwah aðstoðarforsætisráðherra og utanríkisráðherra Namibíu er í heimsókn hér á landi ásamt sendinefnd. Hún átti fundi í dag með utanríkisráðherra og forsætisráðherra þar sem svonefnt Samherjamál var meðal annars til umræðu. Síðdegis átti hún svo fund með aðstoðarmanni ráðherra og starfsfólki í dómsmálaráðuneytinu.