30. nóv. 2021Forsætisráðuneytið, Norrænt samstarf, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Guðmundur Ingi Guðbrandsson samstarfsráðherra Norðurlanda
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að skipa Guðmund Inga Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, sem samstarfsráðherra Norðurlanda. Samstarfsráðherra ber ábyrgð á norrænu ríkisstjórnarsamstarfi innan Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir hönd forsætisráðherra.