Gagnvegir góðir – formennska Íslands 2019

Ísland gegndi formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2019. Yfirskrift formennskuársins var „Gagnvegir góðir“, sem vísar til vináttu Norðurlandanna sem birtist í öflugu samstarfi en gagnvegir liggja líka út í heim þar sem Norðurlöndin kynna sig sameiginlega og leggja sitt af mörkum til alþjóðasamstarfs. Áherslumál Íslands á formennskuárinu voru þrjú: Ungt fólk, sjálfbær ferðamennska og málefni hafsins.
Formennska Íslands - ungt fólk
Framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar er að Norðurlönd eigi að vera besti staður í heimi fyrir börn og ungmenni.
Formennska Íslands - ferðamennska
Samspilið milli náttúru, menningar og sögu ásamt fjárfestingu í innviðum hefur skapað mikinn vöxt í ferðaþjónustunni.
Formennska Íslands - hafið
Hafið leggur grunn að velferð og gildum og gegnir miklu hlutverki í náttúru, menningu og viðskiptum um öll Norðurlönd.
Var efnið hjálplegt?