Sjá ferilskrá á ensku.
Bergdís Ellertsdóttir er sendiherra Íslands gagnvart Kína. Hún á að baki langan feril í utanríkisþjónustunni og hefur því komið víða við. Meðal nýlegra verkefna má nefna, að Bergdís var sérstakur sendiherra norðurslóða í tvö ár og á sama tíma sinnti hún starfi staðgengils ráðuneytisstjóra.
Á árunum 2019 til 2024 var Bergdís sendiherra Íslands gagnvart Bandaríkjunum og fyrir þann tíma var hún um skeið fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York.
Árin 2014 til 2018 dvaldi Bergdís í Brussel þar sem hún var fastafulltrúi gagnvart Evrópusambandinu, sinnti EFTA og EES samstarfinu auk þess að vera sendiherra gagnvart Belgíu, Lúxemborg og Hollandi. Önnur verkefni snúa að öryggis- og varnarmálum, m.a. á vettvangi Atlantshafsbandalagsins, viðskiptum, tvíhliða samskiptum við fjölmörg ríki, auk þess að vera skrifstofustjóri alþjóðasamskipta, aðstoðarframkvæmdastjóri EFTA og ráðgjafi forsætisráðherra í utanríkismálum.
„Ég er mjög spennt að taka við starfi sendiherra Íslands í Kína. Þótt ég hafi ekki áður búið í Kína var ég svo lánsöm að taka þátt í og leiða til lykta fríverslunarsamning Íslands og Kína, sem hefur verið grunnur að auknum viðskiptum og samskiptum ríkjanna.“ - Bergdís Ellertsdóttir, sendiherra.
Bergdís er menntuð í stjórnmálafræði í Þýskalandi, á Íslandi og í Bretlandi. Hún er gift Jóni Óskari Sólnes, og eiga þau fjögur börn.