Heilbrigðisþing 2026

Haldið fimmtudaginn 26. nóvember kl. 8.30 – 16.00 á Hótel Hilton

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra boðar til árlegs heilbrigðisþings 26. nóvember næstkomandi. Þingið verður að þessu sinni helgað áhrifaþáttum geðheilsu barna, lágþröskuldaþjónustu og nýjungum í geðheilbrigðisþjónustu við börn.

 

„Ég hef frá fyrsta degi sem heilbrigðisráðherra lagt áherslu á aukna þjónustu við börn. Með virkum forvörnum og snemmtækri íhlutun er hægt að draga úr hættu á því að börn þrói með sér geðrænan vanda og stuðla að heilbrigðum þroska þeirra á mikilvægasta og viðkvæmasta æviskeiðinu“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

Heilbrigðisþingið verður haldið á hótel Hilton Reykjavík, Suðurlandsbraut 2.

Beint streymi verður frá þinginu fyrir þá sem ekki geta mætt á staðinn. Mælt er með því að fólk skrái þátttöku í streymið því skráð þátttaka gefur kost á notkun smáforrits sem m.a. gerir kleift að beina spurningum til fyrirlesara. Einnig verður birtur hlekkur á streymið hér þegar nær dregur þinginu.
Aðgangur er ókeypis en skráning þátttöku er áskilin.

Ráðstefnustjóri verður Unnsteinn Manuel Stefánsson

 

Skrá þátttöku í heilbrigðisþingi
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra

Dagskrárdrög

8.00Morgunhressing og innskráning
8.30Setning þings
8.35Opnunarávarp Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra
LYKILERINDI: Samstarf, samábyrgð og stefnumótun þvert á kerfi. Sigrún Daníelsdóttir embætti landlæknis.
Fyrsti hluti: Spennandi erindi og nýsköpun í heilbrigðisþjónustu við börn.
Umbreytingarverkefni í þágu betri geðheilbrigðisþjónustu við börn*. Anna María Káradóttir og Sandra Sif Gunnarsdóttir, heilbrigðisráðuneytinu.
Tölum saman um líðan og tengsl. Grímur Atlason, Geðhjálp.
10.00KAFFIHLÉ
Bergið Headspace - Uppbygging aðgengilegrar, faglegrar og hagkvæmrar geðheilbrigðisþjónustu fyrir ungt fólk. Eva Rós Ólafsdóttir, Bergið.
Meðferð við Kvíðavanda barna óháð póstnúmeri: Innleiðing FLIKK á Íslandi. Brynjar Halldórsson, háskólanum í Reykjavík og Hafdís Einarsdóttir, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Fókus til framtíðar – ADHD-teymi barna á Suðurlandi. Vignir Sigurðsson, Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

Ofbeldi gegn börnum sem lýðheilsuáskorun: Samræmd viðbrögð heilbrigðisþjónustunnar við ofbeldi og öðrum áföllum í lífi barna:

  • Vegferð heilbrigðisráðuneytisins. Drífa Jónasdóttir.
  • Hlutverk skólaheilsugæslu í snemmtækri greiningu og viðbrögðum. Þorbjörg Anna Steinarsdóttir, Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
  • Sérhæfð heilbrigðisþjónusta hjá Ofbeldis- og áfallateymi barna. María Rut Beck og Rannveig Björk Guðjónsdóttir, Landspítala.
11.55HÁDEGISHLÉ
Annar hluti: Áhrifaþættir og áskoranir geðheilbrigðis barna í nútímanum
Lykilerindi: Screen Use and Mental Health in Children and Adolescents. Aida Bikic, Sud Danske Universitet.
Ólseigir krakkar. Ársæll Már Arnarsson, Háskóli Íslands.
Hvað er skjánum að kenna? Rannsóknir á líðan ungmenna. Þórhildur Halldórsdóttir, Háskólinn í Reykjavík.
„Við viljum hjálpa en vitum ekki hvernig“ – Átraskanir ungmenna, ábyrgð samfélagsins og hvernig við veitum betri stuðning.* Elín Vigdís Guðmundsdóttir, Landspítala og SÁTT.
14.00KAFFIHLÉ
Áhrifavaldurinn í vasanum okkar. Skúli Bragi Geirdal, Netvís.
Pallborð I Flókin tengsl áhrifaþátta á líðan barna – Nú eru góð ráð dýr
Þátttakendur: Ársæll Már Árnason, Aida Bikic, Þórhildur Halldórsdóttir, Elín Vigdís Guðmundsdóttir, Skúli Bragi Geirdal og Eva Rós Ólafsdóttir.
Stjórnandi: Sigrún Þóra Sveinsdóttir frumkvöðull.
(Pallborðið fer fram á ensku).
Pallborð II Vangaveltur og skilaboð ungmenna til stjórnvalda og samfélagsins
Þátttakendur: Ágúst Andri Margeirsson, Emil Arthúr Júlíusson, Oddvör Skorrastein Sigurðardóttir, Theodóra Reykdal og París Anna Bergmann.
Stjórnandi: Unnsteinn Manuel Stefánsson
15.55Lokaorð Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra
16.00Ráðstefnuslit

 

Fyrirlesarar

Aida Bikic

Aida Bikic

Aida er með doktorsgráðu í sálfræði með sérþekkingu á ADHD, taugafjölbreytileika og skjánotkun. Hún er dósent við Háskóla Suður-Danmerkur (SDU) og sinnir rannsóknum í samstarfi við Yale-háskólann á áhrif skjánotkunar á heila, líðan og þroska barna og ungmenna. Aida starfar einnig sem ráðgjafi í Danmörku, Þýskalandi og á vettvangi Evrópusambandsins, með áherslu á að styðja skóla, stofnanir/félög og stefnumótendur við að skapa heilbrigðara stafrænt umhverfi fyrir börn og ungmenni.

Anna María Káradóttir

Anna María Káradóttir

Anna María er lögfræðingur með rúmlega 15 ára reynslu af opinberri stjórnsýslu og heilbrigðismálum. Hún starfar á skrifstofu heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu í heilbrigðisráðuneytinu og vinnur að stefnumótun og ráðgjöf á sviði heilbrigðismála, þá sérstaklega er varðar geðheilbrigðisþjónustu, heilsugæslu, þjónustu við börn og mál sem varða ofbeldi og samvinnu við lögreglu. Einnig kemur hún að gerð lagafrumvarpa og reglugerða. Áður starfaði Anna María sem lögfræðingur hjá embætti landlæknis.

 

Ársæll Már Arnarsson

Ársæll Már Arnarsson

Ársæll er prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hann hefur áratuga reynslu af rannsóknum á heilsu og líðan barna og unglinga. Eftir hann liggja 6 bækur og um 100 vísindagreinar sem fjalla meðal annars um einelti, geðheilsu og sjálfsvíg. Hann stjórnaði þátttöku Íslands í tveimur stórum alþjóðlegum rannsóknum og hefur verið ráðgjafi fyrir bæði UNICEF og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina. Nýjasta bók hans kemur út í byrjun næsta árs og nefnist „Listin að vera leiðinlegt foreldri“.

Brynjar Halldórsson

Brynjar Halldórsson

Dr. Brynjar Halldórsson er dósent í klínískri sálfræði við Háskólann í Reykjavík, sérfræðingur í klínískri sálfræði og starfar við Landspítala og rannsakandi við Oxford-háskóla. Hann lauk doktorsprófi frá University of Bath og starfaði um árabil í Bretlandi við rannsóknir og klínískt starf. Sérsvið hans eru kvíðaraskanir og áráttu- og þráhyggjuröskun hjá börnum og fullorðnum. Hann leiðir innleiðingu FLIKK, stafrænnar hugrænnar atferlismeðferðar við kvíða barna, á landsvísu.

Drífa Jónasdóttir

Drífa Jónasdóttir

Drífa er sérfræðingur á skrifstofu heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu í heilbrigðisráðuneytinu þar sem hún sinnir stefnumótun og þróun heilbrigðisþjónustu, meðal annars á sviði ofbeldis- og áfallamála. Hún er með meistaragráðu í hagnýtri félagslegri sálfræði frá University of Sussex, framhaldsnám í afbrotafræði og réttarfari frá University of Brighton og stundar doktorsnám við læknadeild Háskóla Íslands. Rannsóknir hennar hafa einkum beinst að kynbundnu ofbeldi, afleiðingum ofbeldis á heilsu og líðan og viðbrögðum heilbrigðiskerfisins til handa þolendum ofbeldis. Áður starfaði hún meðal annars hjá Kvennaathvarfinu, Hagstofu Íslands og Barnavernd Reykjavíkur.

Elín Vigdís Guðmundsdóttir

Elín Vigdís Guðmundsdóttir

Elín Vigdís Guðmundsdóttir er lögfræðingur, stofnandi og formaður SÁTTar, samtaka um átröskun og tengdar raskanir. Hún starfar sem lögfræðingur hjá meðferðarheimilinu Krýsuvík og ráðgjafi hjá átröskunarteymi Landspítala.

Elín hefur um árabil beitt sér fyrir aukinni fræðslu, forvörnum, snemmtækri íhlutun og bættum meðferðarúrræðum á sviði geðheilbrigðismála. Hún hefur leitt fjölbreytt fræðslu- og forvarnarverkefni, meðal annars landsátak í fræðslu um átraskanir fyrir heilbrigðisstarfsfólk 2025-26 með styrk frá Styrktarsjóði geðheilbrigðis. Hún leiðir norræna samstarfsverkefnið Nordic Hope, tekur þátt í evrópskum verkefnum og á í virku samstarfi við fagfólk, stofnanir og félagasamtök hérlendis og erlendis.

Elín beinir sjónum sínum sérstaklega að réttindum barna og ungmenna, mikilvægi þess að bregðast tímanlega og með viðeigandi hætti við þegar geðrænn vandi, svo sem átraskanir, kemur fram, og að tryggja einstaklingum og fjölskyldum þeirra aðgengilegan og samfelldan stuðning. Hún brennur fyrir því að efla samstarf, rjúfa fordóma og stuðla að raunverulegum kerfisbreytingum og/eða umbótum í geðheilbrigðisþjónustu.

Eva Rós Ólafsdóttir

Eva Rós Ólafsdóttir

Eva Rós er framkvæmdastjóri Bergsins headspace, sem veitir ungu fólki á aldrinum 12–25 ára gjaldfrjálsa ráðgjöf og stuðning án tilvísunar. Hún er félagsráðgjafi að mennt og hefur víðtæka reynslu af félags- og velferðarþjónustu, meðal annars úr fangelsis- og fullnustumálum, barnavernd og þjónustu við flóttafólk.

Eva Rós hefur starfað hjá Berginu frá opnun þess árið 2019, áður sem fagstjóri og nú sem framkvæmdastjóri. Í starfi sínu hefur hún meðal annars unnið að uppbyggingu og þróun þjónustunnar, auknu aðgengi ungs fólks að snemmtækum stuðningi og útvíkkun þjónustu Bergsins víðar um land.

Hún leggur sérstaka áherslu á að ungt fólk geti fengið aðstoð snemma, á eigin forsendum og án óþarfa hindrana.

Grímur Atlason

Grímur Atlason

Grímur er framkvæmdastjóri Geðhjálpar. Hann hefur um árabil komið að stjórnun og stefnumótun og hefur í störfum sínum látið sig varða um mannréttindi, velferð og samfélagslegar breytingar.

Í starfi sínu hjá Geðhjálp hefur Grímur lagt áherslu á aukin réttindi fólks sem hefur persónulega reynslu af geðrænum áskorunum, gefið þeirra röddum meira vægi og stuðlað að fjölbreyttari úrræðum þeim til handa. Þá hefur hann í störfum sínum lagt áherslu á endurskoðun ríkjandi nálgunar í geðheilbrigðisþjónustu. Hann hefur jafnframt talað fyrir aukinni áherslu á samfélagslega þætti geðheilbrigðis; forvarnir og samfélag þar sem fólk fær raunveruleg tækifæri til þátttöku, bata og innihaldsríks líf.

Hafdís Einarsdóttir

Hafdís Einarsdóttir

Hafdís Einarsdóttir er sérfræðingur í klínískri barnasálfræði. Hún lauk Cand Psych námi frá Háskóla Íslands og einnig tveggja ára sérnámi í hugrænni atferlismeðferð frá sama skóla. Hún hefur starfað við greiningar, ráðgjöf og meðferð auk þess að hafa sinnt kennslu og haldið ýmis námskeið. Hafdís er verkefnisstjóri FLIKK hjá Heilsubrú þar sem helsta verkefnið er innleiðing FLIKK, stafrænnar hugrænnar atferlismeðferðar við kvíða barna, á heilbrigðisstofnanir um allt land.

María Rut Beck

María Rut Beck

María Rut er miðlægur verkefnastjóri á Verkefnastofu Landspítala. Hún er með BS-gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands, MPM-gráðu í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík og IPMA-C vottun í verkefnastjórnun. Frá árinu 2023 hefur hún stýrt verkefnum sem snúa að heilbrigðisþjónustu við börn sem þolendur ofbeldis, þar sem breytingastjórnun og samvinna þvert á kerfi hafa verið í forgrunni. Hún hefur jafnframt reynslu af þjónustuhönnun og notendarannsóknum í heilbrigðisþjónustu.

Rannveig Björk Guðjónsdóttir

Rannveig Björk Guðjónsdóttir

Rannveig Björk er deildarstjóri á bráðamóttöku barna á Barnaspítala Hringsins. Hún er hjúkrunarfræðingur með BS-gráðu frá Háskólanum á Akureyri og hefur starfað við barnahjúkrun allan sinn starfsferil. Hún hefur komið að uppbyggingu þjónustu fyrir börn sem þolendur ofbeldis og leiðir Ofbeldis- og áfallateymi barna.

Sandra Sif Gunnarsdóttir

Sandra Sif Gunnarsdóttir

Sandra Sif Gunnarsdóttir er hjúkrunarfræðingur með meistaragráðu í heilbrigðisstjórnun, diplómu í kynfræði og stundar Executive MBA-nám við Háskólann í Reykjavík. Hún starfar sem sérfræðingur á skrifstofu heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu í heilbrigðisráðuneytinu, þar sem hún vinnur meðal annars að stefnumótun og verkefnum á sviði geðheilbrigðis, sjálfsvígsforvarna, kynheilbrigðis og málefna hinsegin fólks. Áður var Sandra deildarstjóri Laugarássins, meðferðargeðdeildar Landspítala, þar sem hún leiddi þverfaglegt starfsfólk og umbótastarf. Hún hefur meðal annars leitt innleiðingu jafningjastuðnings (IPS) innan geðheilbrigðisþjónustu Landspítala. Sandra hefur sérstakan áhuga á fólki og því hvernig megi skapa betri þjónustu með samstarfi, skýrum ferlum og virkri þátttöku notenda og fagfólks. Hún sér jafnframt mikil tækifæri í ábyrgri nýtingu gervigreindar til að styðja við betri þjónustu og ákvarðanatöku.

Sigrún Daníelsdóttir

Sigrún Daníelsdóttir

Sigrún er sálfræðingur og teymisstjóri geðræktar hjá embætti landlæknis. Hún leiðir geðræktarþátt Heilsueflandi skóla, vinnustaða og samfélaga og hefur stýrt margvíslegum verkefnum á sviði stefnumótunar, s.s. vinnuhóp um geðrækt og forvarnir fyrir geðheilbrigðisstefnu, aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum og áætlun um geðrækt, forvarnir og stuðning við börn og ungmenni í skólum. Hún hefur jafnframt leitt norræn og evrópsk verkefni á sviði geðheilsu, m.a. um geðheilsu á fyrstu æviárunum og geðheilsu í allri stefnumótun (MHiAP).

Sigrún Þóra Sveinsdóttir

Sigrún Þóra Sveinsdóttir

Sigrún Þóra  er sálfræðingur og doktor í lífeðlislegri sálfræði. Hún hefur meðal annars starfað sem sérfræðingur hjá heilbrigðisráðuneytinu, embætti landlæknis, yfirsálfræðingur Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og leiðtogi sálfræðiþjónustu fullorðinna hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Hún hefur kennt við Háskólann í Reykjavík og stundar rannsóknir á streitu, geðheilsu og lífeðlislegri sálfræði.

Sigrún stýrir pallborðsumræðum á þinginu.

Skúli Bragi Geirdal

Skúli Bragi Geirdal

Skúli Bragi Geirdal er fjölmiðlafræðingur að mennt og sérfræðingur á sviði upplýsinga- og miðlalæsis. Hann starfar í dag sem sviðsstjóri Netvís - Netöryggismiðstöðvar Íslands. Skúli stofnaði og heldur úti Tengslaneti um upplýsinga- og miðlalæsi á Íslandi. Auk þess felst starf hans m.a. í stefnumótunarvinnu, alþjóðlegu samstarfi, fræðslustarfi og umsjón með rannsóknum Fjölmiðlanefndar á miðlalæsi sem unnar eru í samstarfi við Menntavísindastofnun Háskóla Íslands og Maskínu. Síðustu ár hefur Skúli ferðast með forvarnar og fræðsluerindi um félagslegt netöryggi og miðlalæsi um allt land og haldið yfir 600 erindi fyrir um 30.000 manns. Hann er varaformaður UMFÍ  og stundakennari í fjölmiðlafræðum við Háskólann á Akureyri.

Unnsteinn Manuel Stefánsson

Ráðstefnustjóri á heilbrigðisþinginu er Unnsteinn Manuel Stefánsson. Unnsteinn er tónlistarmaður en hefur einnig starfað töluvert við dagskrár- og heimildarmyndagerð auk gerð tónlistarmyndbanda. Hann stundaði nám á sviðshöfundabraut LHÍ og nám í handritaskrifum fyrir sjónvarp í DFFB kvikmyndaskólanum í Berlín. Unnsteinn hefur starfað með hljómsveitinni Retro Stefson frá árinu 2006 en hefur líka gefið út töluvert af tónlist undir eigin nafni.

Vignir Sigurðsson

Vignir Sigurðsson

Vignir er sérfræðingur í barnalækningum með doktorspróf í læknisfræði frá Gautaborgarháskóla. Hann starfar sem yfirlæknir barnalækninga og framkvæmdastjóri lækninga á Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) ásamt stöðu gestalektors við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Síðasta árið hefur hann tekið þátt í námsbraut í nýsköpun í heilbrigðiskerfinu á Landspítala og sem hluti af því tekið þátt í KLAK Health heilbrigðistæknihraðli sem einn af stofnendum HILDA tæknilausnarinnar. Á HSU hefur hann hefur leitt þróun lífstílsmóttöku fyrir börn með offitu, Kraftmiklir Krakkar, á heilsugæslum Suðurlands. Í september 2026 setti Vignir af stað nýtt verkefni með stuðningi frá Heilbrigðisráðuneytinu, Fókus til Framtíðar, sem miðar að því að bæta aðgengi barna á Suðurlandi að meðferð vegna ADHD.

Þorbjörg Anna Steinarsdóttir

Þorbjörg Anna Steinarsdóttir

Þorbjörg Anna er hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands. Hún er með meistaragráðu í heilbrigðisvísindum og diplómu í Heilsugæsla í héraði: klínísk leið frá Háskólanum á Akureyri þar sem hún vann m.a. verkefni í tengslum við áföll barna og áfallamiðaða nálgun. Hún starfar við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á heilsugæslustöð Selfoss þar sem hún sinnir heilsuvernd skólabarna, er verkefnastjóri og teymisstjóri Fjölskylduteymis Árborgar. Í gegnum árin hefur Þorbjörg komið að vinnu fræðsluefnis hjúkrunarfræðinga fyrir grunnskólabörn, er hluti af teyminu sem liggur að baki Kraftmiklum krökkum, hefur haldið erindi t.d. á ráðstefnu RGR um kynheilbrigði og fjölbreyttan taugaþroska. Hennar ástríða innan heilsugæslunnar er á heilsuvernd skólabarna og hefur hún mikinn áhuga á að lyfta upp og efla það mikilvæga starf og hjúkrunarfræðinga sem því sinna. Hún tók þátt í pilot verkefni HRN varðandi nýjar spurningar um ofbeldi í viðtali við grunnskólabörn um heilsu og líðan.

Þórhildur Halldórsdóttir

Þórhildur Halldórsdóttir

Þórhildur er dósent við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík og klínískur barnasálfræðingur. Hún lauk doktorsprófi í klínískri barnasálfræði frá Virginia Tech og hefur starfað við meðal annars Max Planck Institute for Psychiatry, Háskóla Íslands og Karolinska Institutet. Rannsóknir hennar beinast að geðheilbrigði barna og ungmenna, með sérstaka áherslu á hvernig umhverfi og reynsla móta líðan yfir æviskeiðið. Undanfarin ár hefur hún meðal annars rannsakað tengsl samfélagsmiðla, tölvuleikja og annarrar stafrænnar miðlanotkunar við líðan ungmenna, auk áhrifa reglna um símanotkun í skólum. Hún hefur sérstakan áhuga á að skilja hvenær, hvernig og fyrir hvaða ungmenni stafræn tækni tengist líðan.

Um erindin

Samstarf, samábyrgð og stefnumótun þvert á kerfi

Áhrifaþættir geðheilbrigðis liggja að stórum hluta utan heilbrigðiskerfisins og snerta flest málefnasvið stjórnvalda. Til að árangur náist við að efla geðheilsu barna þarf að taka mið af geðheilsu í allri stefnumótun stjórnvalda og tryggja sameiginlega ábyrgð þvert á kerfi. Í erindinu fjallar Sigrún Daníelsdóttir um geðheilsu í allar stefnur (Mental Health in All Policies; MHiAP) og tvö innlend dæmi tekin um stefnumótun þvert á kerfi: geðheilsu á fyrstu æviárum barna og geðrækt í skólastarfi.

Tölum saman um líðan og tengsl

Þegar kemur að geðheilbrigði barna beinum við sjónum okkar gjarnan að birtingarmynd vandans fremur en orsökum hans. Í haust fóru Geðhjálp og Barnaheill um landið og ræddu við nemendur í 9. og 10. bekk um líðan og tengsl. Grímur Atlason greinir í erindi sínu frá helstu niðurstöðum samtalanna. Jafnframt verður sjónum beint að ábyrgð samfélagsins. Hvernig styðjum við verðandi foreldra og tryggjum þeim svigrúm til að sinna foreldrahlutverkinu? Hvað setjum við í forgang þegar kemur að uppeldi og velferð barna?

Bergið headspace – uppbygging aðgengilegrar, faglegrar og hagkvæmrar geðheilbrigðisþjónustu fyrir ungt fólk

Í erindinu fjallar Eva Rós Ólafsdóttir um uppbyggingu og þróun Bergsins Headspace, sem hefur vaxið úr einni starfsstöð í þjónustu víða um land. Farið verður yfir hvernig tekist hefur að byggja upp faglega og gjaldfrjálsa lágþröskuldaþjónustu fyrir ungt fólk á aldrinum 12–25 ára, án tilvísana eða langra biðlista. Sérstök áhersla verður lögð á mikilvægi snemmtæks stuðnings og hvernig hægt er að auka aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu með hagkvæmum hætti.

Meðferð við kvíðavanda barna óháð póstnúmeri: Innleiðing FLIKK á Íslandi

Kvíðavandi er með algengustu geðrænu vandamálum barna og bið eftir árangursríkri meðferð er oft löng. FLIKK er stafræn hugræn atferlismeðferð sem foreldrar leiða með stuðningi meðferðaraðila. Hún býðst nú gjaldfrjálst í heilsugæslu um allt land og foreldrar geta sjálfir sótt um hana fyrir barnið sitt, án tilvísunar. Í erindinu er sagt frá innleiðingunni á FLIKK, reynslunni og árangrinum hingað til og því hvað þarf til svo stafrænar lausnir festist í sessi í heilbrigðisþjónustu.

Í erindinu segja Brynjar Halldórsson og Hafdís Einarsdóttir frá innleiðingunni á FLIKK, reynslunni og árangrinum hingað til og því hvað þarf til svo stafrænar lausnir festist í sessi í heilbrigðisþjónustu.

Sjá einnig grein þeirra: Technology Matters: From innovation toimplementation – Nationwide self-referral for digitalmental healthcare is possible

Fókus til framtíðar – ADHD-teymi barna á Suðurlandi

Í september hófst samvinnuverkefni Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Geðheilsumiðstöðvar barna og skólaþjónusta sveitafélaga á Suðurlandi. Markmiðið er að stytta bið barna eftir meðferð vegna ADHD á Suðurlandi. Vignir Sigurðsson, yfirlæknir barnalækninga og framkvæmdastjóri lækninga við HSU fer yfir ferlið og reynsluna af samvinnunni hingað til.

Ofbeldi gegn börnum sem lýðheilsuáskorun: Samræmd viðbrögð heilbrigðisþjónustunnar við ofbeldi og öðrum áföllum í lífi barna

Hér verður fjallað um vegferð heilbrigðisráðuneytisins í að efla þjónustu við börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi eða öðrum áföllum. Drífa Jónasdóttir sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu segir frá áherslu ráðuneytisins í víðu samhengi, fjallar um ofbeldi gegn börnum sem lýðheilsuáskorun og hlutverk heilbrigðisþjónustu í snemmbærri greiningu og viðbrögðum. Þá tekur við Þorbjörg Anna Steinarsdóttir og ræðir um þróun samtals skólahjúkrunarfræðinga við börn, þar sem meðal annars er rætt um ofbeldi, heilsu og líðan barnanna. Loks fjalla María Rut Beck og Rannveig Björk Guðjónsdóttir um sérhæfða heilbrigðisþjónustu hjá Ofbeldis- og áfallateymi barna á Landspítala. Saman varpa fyrirlesararnir ljósi á hvernig samstillt heilbrigðisþjónusta getur tengt snemmtæka greiningu við viðeigandi stuðning og áframhaldandi þjónustu þegar hennar er þörf.

Hlutverk skólaheilsugæslu í snemmtækri greiningu og viðbrögðum

Í erindinu fjallar Þorbjörg Anna Steinarsdóttir um verkefni stjórnvalda sem miðar að því að styrkja Heilsu og líðan samtöl í heilsuvernd skólabarna með það að markmiði að skapa börnum öruggt tækifæri til að ræða líðan, öryggi og mögulega reynslu af ofbeldi. Farið verður yfir þróun verkefnisins, reynslu af forprófun í grunnskólum og hvernig verkefnið tengist uppbyggingu skýrra þjónustuleiða og sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu fyrir börn sem þurfa stuðning vegna áfalla svo sem ofbeldis.

Sérhæfð heilbrigðisþjónusta hjá Ofbeldis- og áfallateymi barna á Landspítala

Börn sem hafa orðið fyrir áföllum, svo sem ofbeldi geta þurft sérhæfða heilbrigðisþjónustu vegna afleiðinga þess. Ofbeldis- og áfallateymi barna á Landspítala tók til starfa í ágúst 2026 og veitir börnum sem hafa orðið fyrir hvers kyns áföllum þverfaglega áfallahjálp. Aðstandendur fá jafnframt stuðning og fræðslu og teymið vinnur í nánu samstarfi við barnavernd, Barnahús, skóla og aðra sem koma að málefnum barnsins.

Í erindinu segja María Rut Beck og Rannveig Björk Guðjónsdóttir frá þjónustunni á Landspítala, hvernig hún varð til og hvernig unnið er að því að tryggja börnum sem þurfa sérhæfða heilbrigðisþjónustu vegna áfalla eins og ofbeldis greiða leið að henni. Einnig verður fjallað um hvert þjónusta á Landspítala stefnir, meðal annars með aukinni áherslu á gagnreynda áfallameðferð og fjölskyldumiðaða nálgun, og opnun Bryndísarhlíðar, þjónustu- og þekkingarseturs Landspítala á sviði ofbeldis og áfalla, þar sem áfallateymi barna og fullorðinna verða undir sama þaki frá vori 2027.

Screen Use and Mental Health in Children and Adolescents

This research-based talk explores myths and facts about screen use and its relationship to children’s and adolescents’ mental health, attention, impulse inhibition, and social development. It also offers practical ways for families and schools to build healthier screen habits.

Aida Bikic is a psychologist, Ph.D. and associate professor and the co-author of Barndom i det blå lys, a handbook for professionals.

Ólseigir krakkar

Ársæll Már Árnason fjallar um breytingar á líðan barna og unglinga á síðustu árum og leiðir til að rækta heilbrigðan sjálfsaga og innri hvatningu. Ársæll hefur skrifað bækur og vísindagreinar sem fjalla meðal annars um einelti, geðheilsu og sjálfsvíg. Nýjasta bók hans kemur út í byrjun næsta árs og nefnist „Listin að vera leiðinlegt foreldri“.

Hvað er skjánum að kenna? Rannsóknir á líðan ungmenna

Skjánotkun barna og ungmenna hefur aukist mikið á síðustu árum, samhliða aukinni andlegri vanlíðan. En eru samfélagsmiðlar og tölvuleikir hluti af vandanum, eða er sambandið flóknara en svo?

Í erindinu fer Þórhildur Halldórsdóttir yfir hvað rannsóknir segja okkur um tengsl skjánotkunar og andlegrar líðan ungmenna. Með hliðsjón af íslenskum og erlendum rannsóknum verður leitast við að svara spurningum á borð við: Veldur skjánotkun vanlíðan og, ef svo, hvenær? Hvað vitum við um árangur aðgerða á borð við símafrí í skólum og aldurstakmarkanir á samfélagsmiðlum?

Að lokum verður sjónum beint að því hvaða leiðir gætu stuðlað að bættri líðan ungmenna, mikilvægi stafrænnar hæfni ungmenna og þeim tækifærum og áskorunum sem ný tækni, þar á meðal gervigreind, hefur í för með sér.

„Við viljum hjálpa – en vitum ekki hvernig“: Átraskanir ungmenna og ábyrgð samfélagsins

Átraskanir eru alvarlegir geðsjúkdómar sem sjást sjaldnast utan á fólki. Talið er að um eitt af hverjum tuttugu ungmennum glími við átröskun, og enn fleiri sýna einkenni átröskunarhegðunar. Samfélagsmiðlar og ný bylgja megrunarmenningar gera það að verkum að börn verða fyrr og oftar fyrir skilaboðum um að þau þurfi að breyta líkama sínum. Á sama tíma vantar úrræði á fyrsta og öðru stigi heilbrigðisþjónustunnar, og eftirfylgni eftir sérhæfða meðferð er ófullnægjandi. En vandinn er alls ekki bundinn við heilbrigðiskerfið, heldur liggur ábyrgðin og tækifærin víðar.

Í erindinu segir Elín Vigdís Guðmundsdóttir, formaður SÁTTar, samtaka um átraskanir, frá fræðsluferð sinni um landið. Þar hitti hún heilbrigðisstarfsfólk og starfsfólk framhaldsskóla sem vill hjálpa ungmennum með átröskunarhegðun en skortir þekkingu og stuðning til þess. Hún ræðir um átraskanir í stafrænum heimi og hvernig megi styðja betur við ungmenni og fagfólk sem vinnur með ungmennum og um forvarnir sem byggja á líkamsvirðingu, sjálfsmildi og miðlalæsi.

Áhrifavaldurinn í vasanum okkar - Hver ræður ferðinni þegar athyglin okkar er orðin að verðmætri söluvöru?

Í vasanum okkar leynist áhrifavaldur sem mótar daglegt líf okkar, hegðun, samskipti og jafnvel sjálfsmynd.

Í erindinu beinir Skúli Bragi Geirdal sjónum að áhrifum snjalltækja og samfélagsmiðla á líf okkar og barnanna okkar. Farið verður yfir hvernig algóritmar og samfélagsmiðlar móta stafrænan veruleika, stýra athygli og hafa áhrif á ákvarðanir, oft án þess að við gerum okkur grein fyrir því. Jafnframt verða kynntar leiðir og hagnýt ráð til að endurheimta stjórnina og skapa heilbrigðara stafrænt umhverfi fyrir okkur öll.

Tökum stjórnina aftur í okkar eigin hendur og nýtum tímann í stað þess að drepa hann!