Fundað með ráðherra norðurslóðamála í Kanada
ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
12. mars 2020
/
Sendiráð Íslands í Ottawa
Í gær hélt Pétur Ásgeirsson, sendiherra Íslands í Kanada, kvöldverðarfund með Dan Vandal, ráðherra norðurslóðamála í ríkisstjórn Kanada með sendiherrum Norðurlanda í Ottawa.
Umræðurnar snerust um sameiginlega reynslu af búsetu á norðurslóðum og samstarf Kanada og Norðurlandanna. Einnig var fjallað um Nordic Bridges, norrænan menningarviðburð sem fyrirhugaður er fyrir árið 2021.
Íslenski sendiherrann ræddi um formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu og lagði til við ráðherrann að hann sækti Hringborð Norðurslóða í Reykjavík í október á þessu ári.