Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna forsetakosninga 1. júní 2024
14. maí 2024
/
Sendiráð Íslands í París
Kosning utan kjörfundar erlendis vegna forsetakosninga 1. júní 2024 hefst 2. maí og fer fram skv. ákvæðum 70. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 112/2021.
Kjörstaðir eru allar sendiskrifstofur Íslands (nema Fastanefnd hjá NATO í Brussel), aðalræðisskrifstofur í Winnipeg, Þórshöfn og Nuuk og hjá kjörræðismönnum.
Kjósendum er ráðlagt að hafa samband við sendiskrifstofur og kjörræðismenn og bóka tíma eftir samkomulagi til að kjósa. Á vef utanríkisráðuneytisins má finna upplýsingar um sendiskrifstofur Íslands og kjörræðismenn eftir löndum.
Í sendiráði Íslands í París verður hægt að kjósa alla virka daga frá 9:30-16:30.
Allir íslenskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili erlendis skemur en 16 ár (talið frá 1. desember árið áður en kosningar eru haldnar) eru sjálfkrafa með kosningarétt á Íslandi. Þeir þurfa að vera orðnir 18 ára á kjördag og hafa einhvern tíma átt lögheimili á Íslandi.
Þeir Íslendingar sem hafa búið erlendis lengur en frá 1. desember 2007 og ekki eru á kjörskrá þurfa að sækja sérstaklega um að þeir verði teknir á kjörskrá fyrir 1. desember árið áður en kosningar eru haldnar. Eyðublað vegna þessa má nálgast á vef Þjóðskrár.
Á Ísland.is er birt upplýsingaefni bæði á íslensku og ensku.