Nýsköpun og tækni á sviði grænna orkuskipta í brennidepli í París
07. nóvember 2025
/
Sendiráð Íslands í París
Nýsköpun og tækni á sviði grænna orkuskipta og voru til umræðu á ráðstefnu sem sendiráð Norðurlandanna í París stóðu fyrir í samstarfi við frönsku hugveituna Institut Montaigne undir yfirskriftinni Nordic French Energy Day: Cooperation for a resilient and sustainable Europe 10 years after the Paris Agreement.
Markmiðið var að tengja sérfræðinga, fulltrúa einkageirans, alþjóðastofnanna og stjórnvalda í Frakklandi og Norðurlöndunum fimm og vekja athygli á norrænum lausnum og samstarfi Norðurlandanna á sviði umhverfis- og orkumála.
Meðal 150 þátttakenda á ráðstefnunni voru fulltrúar íslenskra fyrirtækja og Fransk-íslenska viðskiptaráðsins. Antoine Lochet frá lögfræðistofunni BBA Fjeldco tók þátt í umræðum um jarðvarmanotkun.