ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
29 maí 2002
/
Utanríkisráðuneytið
Trúnaðarbréfsafhending í Malawi
Nr. 052
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
Björn Dagbjartsson sendiherra afhenti í dag, miðvikudaginn 29. maí 2002, dr. Bakili Muluzi, forseta Malawi, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Malawi með aðsetur í Maputo.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 29. maí 2002