ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
03 janúar 2011
/
Atvinnuvegaráðuneytið

Niðurstöður umsókna varðandi úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi


Niðurstöður umsókna varðandi úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi, fyrir tímabilið janúar – desember 2011

 

Miðvikudaginn 1. desember 2010 rann út umsóknarfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á smurostum frá Noregi, fyrir tímabilið janúar – desember 2011, samtals 13.000 kg, sbr. reglugerð nr. 896/2010.

Ein umsókn barst frá Innnes ehf um tollkvóta vegna innflutnings, samtals 5.000 kg og var fyrirtækinu úthlutað því magni.

 

Reykjavík, 31. desember 2010.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið