ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
17 maí 2011
/
Utanríkisráðuneytið
Afhenti trúnaðarbréf í Nepal
Guðmundur Eiríksson sendiherra afhenti í gær forseta Nepals Dr. Ram Baran Yadav trúnaðarbréf sitt sem sendiherra í Nepal með aðsetur í Nýju Delí. Að athöfninni lokinni ræddu forsetinn og sendiherrann almennt um samskipti ríkjanna.