27 maí 2026
/

Mál nr. 148/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 148/2026

Miðvikudaginn 27. maí 2026

A

gegn

Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 24. febrúar 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála úrskurð Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu frá 26. nóvember 2025 um að hafna kröfu kæranda um sérstakt framlag vegna tannréttinga sonar hennar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með beiðni, dags. 24. september 2025, til Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu óskaði kærandi eftir sérstöku framlagi vegna tannréttinga sonar hennar. Með úrskurði, dags. 26. nóvember 2025, hafnaði sýslumaður beiðni kæranda með þeim rökum að hún hefði komið of seint fram þar sem meira en þrír mánuðir hafi liðið frá lokum meðferðar með föstum tækjum þar til beiðnin hafi verið lögð fram hjá sýslumanni.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 24. febrúar 2026. Með bréfi, dags. 26. febrúar 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 10. apríl 2026, bárust gögn málsins frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu og voru þau kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 14 apríl 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram sú krafa að felldur verði úr gildi úrskurður Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 26. nóvember 2025, og að beiðni um framlag samkvæmt 41. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar verði tekin til efnislegrar meðferðar. Rökstuðningur sýslumanns sé byggður á því að samfelldri meðferð tannréttinga hafi lokið í apríl 2025 þegar hluti fastra tækja hafi verið fjarlægður. Hins vegar hafi svokallaðar tyllur verið áfram á tönnum barnsins sem hafi ekki verið fjarlægðar fyrr en í ágúst 2025. Samkvæmt upplýsingum frá B tannréttingalækni og sérfræðingi í tannréttingum teljist tyllur föst tæki og hluti af virkri meðferð. Sem foreldri barns í tannréttingum hafi hún hvorki haft sérþekkingu né forsendur til að meta nákvæmlega hvaða tæki teljist föst tæki í tannréttingameðferð. Kærandi hafi því eðlilega haft ástæðu til að líta svo á að meðferð væri ekki lokið fyrr en öll föst tæki, þ.m.t. tyllur, hefðu verið fjarlægð. Það sé því mat kæranda að þriggja mánaða frestur samkvæmt 3. mgr. 41. gr. laga um almannatryggingar hafi átt að miða við það tímamark.

III.  Sjónarmið Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu

Í kærðri ákvörðun kemur fram að Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu hafi þann 24. september 2025 borist beiðni kæranda um að úrskurðað yrði um framlag á grundvelli 41. gr. laga um almannatryggingar en faðir drengsins sé látinn. Nánar tiltekið hafi verið óskað eftir að úrskurðað yrði um kröfu að fjárhæð 503.335 kr. vegna tannréttinga barnsins. Til stuðnings kröfunni hafi kærandi lagt fram greiðsluyfirlit yfir heildarkostnað tannréttinga, dags. 18. september 2025, meðferðarlýsingu tannlæknis, dags. 18. september 2025, reikninga vegna tannréttinga frá 10. maí 2022 til 22. apríl 2025 ásamt erindi tannlæknis, dags. 13. nóvember 2025.

Samkvæmt 41. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar um barnalífeyri vegna sérstakra útgjalda, geti Tryggingastofnun ríkisins greitt sérstakt framlag vegna útgjalda við skírn barns, fermingu, gleraugnakaup, tannréttingar, vegna sjúkdóms, greftrunar eða af öðru sérstöku tilefni. Framlagið sé einungis heimilt að greiða vegna barna sem greiddur sé barnalífeyrir með og annað hvort foreldra sé látið, barn ófeðrað eða móður njóti ekki við vegna sérstakra eða óvenjulegra aðstæðna. Um viðmiðunarfjárhæðir vegna krafna um sérstök framlög gildi sömu reglur og um úrskurði vegna sérstakra útgjalda samkvæmt 60. gr. barnalaga nr. 76/2003.

Framlag samkvæmt 41. gr. laga um almannatryggingar verði aðeins ákveðið ef sýslumaður hafi úrskurðað um slíkt framlag samkvæmt beiðni sem honum skuli send innan þriggja mánaða frá því að svara varð til útgjalda nema eðlileg ástæða hafi verið til að bíða með slíka kröfu. Beri sýslumanni að úrskurða um kröfu kæranda. Skilyrði fyrir rétti til framlags sé að barnalífeyrir sé greiddur með barninu og hafi sýslumaður aflað upplýsinga frá Tryggingastofnun ríkisins um að svo sé, enda sé faðir barnsins látinn.

Samkvæmt 3. mgr. 41. gr. laga um almannatryggingar skuli beiðni um framlag send sýslumanni innan þriggja mánaða frá því að svara varð til útgjalda nema eðlileg ástæða hafi verið til að bíða með slíka kröfu. Krafan hafi verið lögð fram þann 24. september 2025 og hafi því ekki komið fram innan þriggja mánaða tímamarka 3. mgr. 41. gr., þar sem föst tæki hafi verið fjarlægð af tönnum barnsins 22. apríl 2025, samkvæmt reikningi tannlæknis, dagsettum sama dag og erindi tannlæknis, dags. 13. nóvember 2025. Beiðnin hafi því ekki komið fram innan tilskilinna tímamarka, enda hafi þá verið liðnir rúmlega fimm mánuðir frá því að föst tæki hafi verið fjarlægð af tönnum barnsins og þar til beiðni hafi komið fram.

Litið sé svo á að sjónarmið sem beitt hafi verið við ákvarðanir sýslumanna á sérstöku framlagi samkvæmt 60. gr. barnalaga nr. 76/2003, eigi við um ákvarðanir samkvæmt 41. gr. laga um almannatryggingar eftir því sem við geti átt.

Um sé að ræða kröfu um framlag vegna tannréttinga. Viðurkennt sé við meðferð mála samkvæmt 60. gr. barnalaga að eðlilegt kunni að vera að bíða með kröfu vegna samfelldrar meðferðar, svo sem tannréttinga, þar til meðferð sé lokið. Þegar um tannréttingar sé að ræða sé litið svo á að samfelldri meðferð ljúki þegar föst tæki séu fjarlægð af tönnum. Beiðni um framlag þurfi því að leggja fram áður en þrír mánuðir séu liðnir frá því tímamarki. Í reikningi frá tannréttingalækni, dags. 22. apríl 2025, komi greinilega fram skýringin „Brottnám fastra tækja, hvor gómur“ og í erindi tannlæknisins, dags. 13. nóvember 2025, komi einnig fram að tækin hafi verið að mestu fjarlægð af tönnum barnsins þann 22. apríl 2025, en aðeins skildar eftir fjórar tillur til að fínstilla sem hafi síðan verið fjarlægðar í ágúst 2025. Að mati sýslumanns sé ljóst að föst tæki í framangreindum skilningi hafi verið fjarlægð í apríl 2025. Beiðni kæranda hafi verið lögð fram hjá sýslumanni þann 24. september 2025 eða rúmum fimm mánuðum eftir að föst tæki hafi verið fjarlægð af tönnum barnsins. Verði því að telja ljóst að krafan hafi ekki verið sett fram innan tímamarka 3. mgr. 41. gr. laga um almannatryggingar og komi þá til skoðunar hvort eðlileg ástæða hafi verið til að bíða með framlagningu kröfunnar.

Að mati sýslumanns verði ekki séð að eðlileg ástæða hafi verið að bíða með framlagningu kröfunnar, þar sem föst tæki hafi sannanlega verið fjarlægð af tönnum barnsins í apríl 2025, þótt skildar hafi verið eftir fjórar tillur á tönnum til að fínstilla, enda sé miðað við að lok samfelldrar meðferðar vegna tannréttinga sé það tímamark er föst tæki hafi verið fjarlægð af tönnum samkvæmt staðfestingu tannréttingalæknis, líkt og fram komi í athugasemdum í greinargerð með frumvarpi til barnalaga nr. 76/2003. Telja verði að kærandi hefði getað lagt erindi sitt fram innan tímafrests 3. mgr. 41. gr. laga um almannatryggingar. Ekkert hefði verið því til fyrirstöðu að mati sýslumanns, enda hafi brottnám fastra tækja þá átt sér stað, kærandi hafi fengið reikning í hendur vegna þeirrar aðgerðar, dags. 22. apríl 2025, jafnvel þótt hún hafi eftir atvikum greitt reikninginn síðar. Enda sé líkt og áður komi fram miðað við það tímamark er föst tæki séu fjarlægð af tönnum barns, en ekki það tímamark er reikningur sé greiddur vegna þeirrar aðgerðar.

Beiðnin sé því of seint fram komin þar sem meira en þrír mánuðir hafi liðið frá lokum meðferðar með föstum tækjum og þar til beiðnin hafi verið lögð fram hjá sýslumanni. Samkvæmt framansögðu verði beiðninni hafnað þar sem hún sé of seint fram komin.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar úrskurð Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu frá 26. nóvember 2025 um að hafna beiðni kæranda um greiðslu sérstaks framlags vegna tannréttinga sonar hennar.

Um sérstakt framlag er fjallað í 41. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Ákvæðið hljóðar svo:

„Tryggingastofnun getur greitt sérstakt framlag vegna útgjalda við skírn barns, fermingu, gleraugnakaup, tannréttingar, vegna sjúkdóms, greftrunar eða af öðru sérstöku tilefni.

Framlag skv. 1. mgr. er einungis heimilt að greiða vegna barna sem greiddur er barnalífeyrir með skv. 40. gr. og annað hvort foreldra er látið, barn ófeðrað eða móður nýtur ekki við vegna sérstakra eða óvenjulegra aðstæðna.

Framlag skv. 1. mgr. verður aðeins ákveðið ef sýslumaður hefur úrskurðað um slíkt framlag samkvæmt beiðni sem honum skal send innan þriggja mánaða frá því að svara varð til útgjalda nema eðlileg ástæða hafi verið til að bíða með slíka kröfu.

Um viðmiðunarfjárhæðir vegna krafna um sérstök framlög gilda sömu reglur og um úrskurði vegna sérstakra útgjalda skv. 60. gr. barnalaga, nr. 76/2003.“

Ágreiningur máls þessa lýtur að því hvort beiðni kæranda um úrskurð um sérstakt framlag hafi borist innan þeirra tímamarka sem fjallað er um í 3. mgr. 41. gr. laga um almannatryggingar. Sambærilegt tímamark er í 2. mgr. 60. gr. barnalaga nr. 76/2003 sem hljóðar svo:

„Framlag skv. 1. mgr. verður því aðeins úrskurðað að krafa um það sé uppi höfð við sýslumann innan þriggja mánaða frá því að svara varð til útgjalda nema eðlileg ástæða hafi verið til að bíða með slíka kröfu.“

Þar sem um sambærilegt ákvæði er að ræða, og sérstaklega er vísað til ákvæðis 60. gr. barnalaga í 41. gr. laga um almannatryggingar, telur úrskurðarnefndin rétt við túlkun á 3. mgr. 41. gr laga um almannatryggingar að líta til 2. mgr. 60. gr. barnalaga. Í athugasemdum með 60. gr. í frumvarpi til barnalaga segir meðal annars svo:

„Að því er 2. mgr. varðar er rétt að taka fram að ef meira en þrír mánuðir eru liðnir frá því að svarað var til útgjalda metur sýslumaður hvort eðlilegt hafi verið að bíða með að setja fram kröfu um framlag. Í þessu sambandi má sérstaklega nefna að ekki verður talið skylt að setja fram kröfu um framlag vegna tannréttinga, sem iðulega stendur yfir í nokkurn tíma, innan þriggja mánaða frá því að hver einstök greiðsla var innt af hendi, a.m.k. ekki ef um samfellda meðferð hefur verið að ræða, heldur getur verið eðlilegt að bíða með kröfu vegna slíkra aðgerða, allt þar til innan þriggja mánaða frá því að meðferð lýkur. Með lokum meðferðar er hér átt við það tímamark þegar föst tæki hafa verið fjarlægð af tönnum samkvæmt staðfestingu réttingatannlæknis, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 2. gr. reglna tryggingaráðs um þátttöku Tryggingastofnunar ríkisins í kostnaði við tannréttingar barna og ungmenna, er gildi tóku 1. maí 2002.“

Samkvæmt gögnum málsins barst Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu þann 24. september 2025 beiðni kæranda um sérstakt framlag vegna tannréttinga sonar hennar. Sýslumaður hafnaði beiðni kæranda um sérstakt framlag með þeim rökum að meira en þrír mánuðir liðu frá lokum meðferðar með föstum tækjum þar til beiðni hafi verið lögð fram hjá sýslumanni. Fram kemur að föst tæki hafi verið fjarlægð að tönnum barnsins 5. apríl 2025.

Fyrir liggur bréf tannréttingatannlæknis frá 13. nóvember 2025 þar sem fram kemur að meðferð sem hafi byrjað 10. maí 2022 sé lokið og að tækin hafi að mestu verið fjarlægð 22. apríl 2025 en að fjórar „tillur“ hafi verið skildar eftir til að fínstilla sem hafi svo verið fjarlægðar í ágúst 2025. Þá liggja fyrir reikningar vegna tannréttinganna og af sjúrnali, dags. 18. september 2025, verður ráðið að síðustu greiðslurnar hafi farið fram 21. ágúst 2025.

Samkvæmt gögnum málsins voru tyllur, sem eru uppistaðan í föstum tækjum til tannréttinga, ekki fjarlægðar hjá syni kæranda að öllu leyti fyrr en í ágúst 2025. Þá verður ekki annað ráðið af gögnum málsins en að þessi fínstilling hafi verið hluti af samfelldri tannréttingarmeðferð. Úrskurðarnefndin telur því að tannréttingarmeðferð sonar kæranda með föstum tækjum hafi ekki lokið fyrr en í ágúst 2025. Með hliðsjón af framangreindu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að eðlileg ástæða hafi verið til að bíða með kröfu kæranda í skilningi 3. mgr. 41. gr. laga um almannatryggingar þar til eftir að meðferð lauk í ágúst 2025. Beiðni kæranda um sérstakt framlag vegna tannréttinga 24. september 2025 barst því sýslumanni innan þeirra tímamarka sem kveðið er á um í 3. mgr. 41. gr. laga um almannatryggingar. Í ljósi þess er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki verið heimilt að hafna beiðni kæranda um sérstakt framlag vegna tannréttinga sonar hennar á þeim grundvelli að hún hafi komið of seint fram.

Úrskurður Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um að hafna beiðni kæranda um sérstakt framlag vegna tannréttinga sonar hennar er felldur úr gildi. Málinu er vísað aftur til Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu til nýrrar meðferðar.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Úrskurður Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um að hafna beiðni A, um sérstakt framlag vegna tannréttinga sonar hennar, er felldur úr gildi. Málinu er vísað aftur til Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu til nýrrar meðferðar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir