Úrskurður 2/2026 Gildi ágreiningsatkvæða við þjóðaratkvæðagreiðslu
Tilvísun: LKS2026090001
Árið 2026, 22. september kl. 14:00 er landskjörstjórn komin saman á fundi í Eddu, húsi íslenskunnar, Arngrímsgötu 5 í Reykjavík, til að úrskurða um gildi ágreiningsatkvæða og lýsa úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fram fór þann 29. ágúst sl.
Fyrir er tekið að úrskurða um fjögur ágreiningsatkvæði úr Reykjavíkurkjördæmi norður og kveðinn upp svofelldur
úrskurður nr. 2/2026:
Ágreiningsatkvæðin bárust landskjörstjórn frá yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis norður þann 31. ágúst sl. Um ágreining er að ræða milli umboðsmanna og yfirkjörstjórnar Reykjavíkurkjördæmis norður og eru ágreiningsatkvæðin send landskjörstjórn til úrskurðar, sbr. 3. mgr. 99. gr. kosningalaga nr. 112/2021.
Af fjórum ágreiningsatkvæðum er eitt þeirra kjörfundaratkvæði og þrjú utankjörfundaratkvæði. Landskjörstjórn hefur farið yfir öll gögn málsins og eru niðurstöður eftirfarandi:
1. Atkvæði skráð nr. 1
Lýsing á atkvæði og ágreiningi
Um er að ræða atkvæðaseðil þar sem dauft X er merkt í ferning við svarkost Já. Einnig er merkt ólögulegt X í ferning við svarkost Nei og jafnframt skrifað X fyrir framan þann ferning. Umboðsmaður Nei-sjónarmiðs taldi atkvæðið gilt. Yfirkjörstjórn úrskurðaði atkvæðið ógilt þar sem vilji kjósanda væri ekki skýr.
Niðurstaða landskjörstjórnar
Landskjörstjórn staðfestir niðurstöðu yfirkjörstjórnar með vísan til b-liðar 1. mgr. 104. gr. kosningalaga og álits og tillagna kjörbréfanefndar Alþingis 2025, sbr. greinargerð undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kosninga, 2025, kafla III.2.
2. Atkvæði skráð nr. 2-4
Lýsing á atkvæði og ágreiningi
Um er að ræða þrjú utankjörfundaratkvæði þar sem við atkvæðagreiðsluna voru ekki notaðir kjörseðlar þeir sem landskjörstjórn lét gera. Atkvæðaseðlarnir eru án spurningar og svarkosta. Skrifað er Já á alla atkvæðaseðlana. Umboðsmaður Já-sjónarmiðs taldi atkvæðin gild. Yfirkjörstjórn úrskurðaði atkvæðin ógild með vísan til þess að atkvæðaseðlarnir væru ekki í samræmi við atkvæðaseðla í þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Niðurstaða landskjörstjórnar
Landskjörstjórn staðfestir niðurstöðu yfirkjörstjórnar með vísan til þess að ekki hafi verið notuð fyrirskipuð kjörgögn sbr. d-lið 1. mgr. 104. gr. kosningalaga.
ÚRSKURÐARORÐ
Ákvarðanir yfirkjörstjórnar Reykjavíkurkjördæmis norður um gildi ágreiningsatkvæða skráð nr. 1, 2, 3 og 4 við þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026 eru staðfestar.
Landskjörstjórn, 22. september 2026
Kristín Edwald, formaður
Arnar Kristinsson
Ebba Schram
Indriði Ingi Stefánsson
Magnús Karel Hannesson