Rödd smáþjóðar í heimi stórvelda
Rödd smáþjóðar í heimi stórvelda
Fyrir nákvæmlega áttatíu árum, þann 19. nóvember 1946, var íslenski fáninn dreginn að húni við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York. Ísland hafði öðlast sjálfstæði aðeins tveimur árum áður og var nú tekið inn í samfélag þjóða sem hafði einsett sér að byggja nýja heimsmynd í skugga tveggja heimsstyrjalda. Þetta var stór stund fyrir litla þjóð - og mikilvæg ákvörðun um framtíð hennar.
Þjóðir heims höfðu lært af skelfilegri reynslu og því hvað gerist þegar stærri ríki telja sig geta ráðstafað örlögum þeirra smærri og þegar mannréttindi fólks eru látin víkja fyrir pólitískum hagsmunum.
Sameinuðu þjóðirnar voru svar við þeirri reynslu. Tilraun til að byggja heim þar sem deilur væru leystar við samningaborðið fremur en á vígvellinum og þar sem réttur þjóða réðist ekki af stærð þeirra eða hernaðarmætti. Sú hugsjón hefur sjaldan skipt okkur Íslendinga meira máli en einmitt núna.
Ávinningurinn af alþjóðasamstarfi
Við Íslendingar höfum aldrei getað reitt okkur á stærð okkar eða hernaðarmátt. Öryggi okkar, sjálfstæði og velsæld byggjast að verulegu leyti á því að alþjóðlegar leikreglur séu virtar. Að friðhelgi landamæra standi. Að þjóðir fái sjálfar að ráða framtíð sinni. Að alþjóðalög gildi jafnt um stóra sem smáa. Þetta eru grundvallarhagsmunir íslensku þjóðarinnar.
Ávinningurinn af alþjóðasamstarfi blasir líka við okkur á öðrum sviðum. Hafréttarsamningur Sameinuðu þjóðanna hefur verið grundvallarstoð í verndun hagsmuna okkar á hafinu og nýtingu auðlinda þess. Alþjóðlegt samstarf hefur fært okkur sameiginlegar reglur, aukið öryggi og skapað forsendur fyrir framförum sem ekkert ríki hefði getað tryggt eitt og sér.
Á vettvangi Sameinuðu þjóðanna höfum við Íslendingar jafnframt getað látið til okkar taka langt umfram stærð þjóðarinnar. Við höfum barist fyrir jafnrétti, mannréttindum, réttindum kvenna og hinsegin fólks, lagt okkar af mörkum til þróunarsamvinnu og staðið með þeim sem þurfa mest á alþjóðlegri samstöðu að halda.
Það er nefnilega bæði mikilvægt og dýrmætt fyrir okkur að njóta verndar alþjóðakerfisins, en við berum ekki síður ábyrgð á að standa vörð um það.
Alþjóðalög gilda líka þegar þau eru óþægileg
Í september stóð ég í ræðustól allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna og ræddi þá hættulegu þróun sem við sjáum nú í alþjóðamálum. Sífellt oftar virðast ríki líta svo á að alþjóðalög gildi aðeins þegar þeim hentar. Að úrskurði dómstóla beri að virða, nema þegar þeir beinast gegn okkur sjálfum eða vinum okkar. Að fullveldi ríkja sé heilagt, nema þegar landsvæði annarra þjóða standa í vegi fyrir metnaði þeirra sem meiri mátt hafa.
Þannig má þetta ekki vera.
Við getum ekki byggt upp alþjóðlega dómstóla, fagnað niðurstöðum þeirra þegar þær beinast gegn andstæðingum okkar en grafið undan þeim þegar þeir beina sjónum sínum að vinum okkar.
Þess vegna höfum við Íslendingar talað skýrt um árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og brot á alþjóðalögum á Gaza og Vesturbakkanum. Þess vegna leggjum við áherslu á ábyrgð þeirra sem brjóta gegn alþjóðalögum, hverjir sem þeir eru.
Því ef við samþykkjum að valdinu fylgi rétturinn til að ákveða örlög annarra þjóða, hvað verður þá um rétt okkar sjálfra?
Ekki fullkomnar, en ómissandi
Það væri auðvitað auðvelt að skrifa hátíðargrein í tilefni dagsins og láta þar við sitja. En við verðum líka að horfast í augu við að Sameinuðu þjóðirnar standa frammi fyrir gríðarlegum áskorunum.
Öryggisráðið hefur ítrekað reynst ófært um að bregðast við hörmungum vegna neitunarvalds stórveldanna. Skrifræði er þungt, ákvarðanataka hæg og fjármunir duga ekki til að mæta vaxandi neyð. Þörfin fyrir umbætur er augljós og Ísland styður þær eindregið.
En gallar Sameinuðu þjóðanna eru ekki rök fyrir því að gefast upp á þeim. Þvert á móti.
Þegar heimurinn verður óstöðugri þurfum við ekki síður á sameiginlegum reglum og stofnunum að halda. Við þurfum meira samstarf, ekki minni samstöðu. Sterkari alþjóðalög, ekki aukið svigrúm fyrir yfirgang.
Sameinuðu þjóðirnar eru ekki trygging fyrir því að aldrei verði framin grimmdarverk. En þær eru vettvangurinn þar sem þjóðir heims geta sameinast um að fordæma þau, krefjast ábyrgðar og vinna að friði. Sá vettvangur má ekki glatast.
Ábyrgðin er nú okkar
Kynslóðin sem stofnaði Sameinuðu þjóðirnar hafði séð með eigin augum hvað gerist þegar hömlur á valdbeitingu bresta. Hún skildi að friður og frelsi væru ekki sjálfgefin gæði heldur eitthvað sem þjóðir þyrftu að verja saman.
Við höfum notið ávaxta þeirrar framsýni í áttatíu ár.
Nú er komið að okkar kynslóð að sýna sömu ábyrgð. Að standa með alþjóðalögum jafnvel þegar það er óþægilegt. Að verja réttindi fólks sem býr langt frá okkur. Að hafna þeirri hugsun að stærri og sterkari þjóðir eigi meiri rétt en aðrar.
Ísland á ekki að láta smæð sína aftra sér frá því að tala skýrt. Við höfum aldrei þurft að vera stór til að hafa rödd. En við þurfum að hafa kjark til að nota hana.
Fyrir áttatíu árum tókum við okkur sæti við borðið sem sjálfstæð þjóð. Þar eigum við áfram að sitja, taka þátt, hafa áhrif og standa vörð um þau gildi sem hafa þjónað okkur svo vel.
Því heimur þar sem lögin víkja fyrir valdinu er ekki heimur þar sem smáþjóðir geta verið öruggar. Og slíkan heim eigum við aldrei að sætta okkur við.
Grein Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, sem birt var í Vísi 19. nóvember 2026