Föstudagspóstur 30. október 2026
Heil og sæl,
Líkt og greint var frá í síðasta föstudagspósti þá undirritaði Þorgerður Katrín Gunnarsdótttir, utanríkisráðherra, í síðustu viku fríverslunarsamning EFTA-ríkjanna og Víetnam fyrir Íslands hönd í Hanoi, höfuðborg Víetnam. Þaðan lá leiðin til Kína þar sem hún hefur verið í opinberum erindagjörðum og fundaði m.a. í Peking í gær með Wang Yi, utanríkisráðherra Kína. Tvíhliða samskipti Íslands og Kína voru efst á baugi, þ.á m. vaxandi viðskipti og tækifæri á sviði jarðhita og grænna orkulausna. Alþjóðamálin voru einnig rædd með áherslu á virðingu fyrir alþjóðalögum og mikilvægi alþjóðasamstarfs og var þar innrásarstríð Rússlands í Úkraínu í forgrunni. Ráðherra var heiðursgestur í móttöku í sendiráði Íslands í Peking þar sem því var fagnað að 55 ár eru liðin frá því að ríkin tvö tóku upp stjórnmálasamband.
Ráðherra sótti einnig sjávarútvegssýninguna í Qingdao í Kína í vikunni, en hún fór þar fyrir sendinefnd íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja sem stunda viðskipti í Kína. Gaman er að segja frá því að fiskútflutningur frá Íslandi til Kína fer vaxandi og beint flug milli landanna er hafið á vegum Air China sem opnar frekari tækifæri til útflutnings á ferskum fiski á Kínamarkaði.
Það var nóg um að vera hjá teyminu okkar í Helsinki í vikunni, en 78. þing Norðurlandaráðs fór þar fram undir yfirskriftinni Almennt öryggi á Norðurlöndum. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólamálaráðherra, og Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, sóttu þingið ásamt öðrum íslenskum þingmönnum. Sendiráðið okkar bauð í móttöku í tilefni Norðurlandaráðsþingsins og var fulltrúum hvaðanæva af Norðurlöndum boðið. Nína Björk Jónsdóttir, sendiherra, flutti ávarp um mikilvægi Norðurlandasamstarfs og samstarfs við Eystrasaltsríkin.
Fyrr í vikunni fundaði sendiherra einnig með Toumas Tapio, ráðuneytisstjóra finnska utanríkisráðuneytisins, ásamt öðrum sendiherrum í Helsinki.
Alþingismennirnir Sigmundur Ernir Rúnarsson og Ingvar Þóroddsson, sem eiga sæti í þróunarsamvinnunefnd, og Þórarinna Söebech, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu, sóttu Malaví heim í vikunni. Þingmennirnir tveir voru í vinnuheimsókn til að kynna sér árangur íslenskrar þróunarsamvinnu, en skýrt dæmi um góðan árangur íslenskrar þróunarsamvinnu mátti sjá við formlega opnun nýs fæðingarspítala í Mangochi-héraði á mánudag. Opnun sjúkrahússins er stór áfangi í þróunarsamvinnu Íslands og Malaví og mun bæta verulega aðgengi um 155,000 íbúa á þessu afskekkta svæði og þá sérstaklega fyrir mæður og nýbura, en landið er eitt hið fátækasta í heimi. Sjúkrahúsið er byggt í samstarfi við íslenskra og malavískra stjórnvalda.
Síðan funduðu þau Sigmundur Ernir, Ingvar, Þórarinna og Davíð Björnsson, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Lilongwe, með utanríkisráðherra Malaví, George T. Chaponda.
Sendiráðið okkar í Kampala heimsótti nýlega CLF Uganda og kynntu sér verkefni samtakanna þar í landi. CLF Uganda eru frjáls félagasamtök í Úganda sem styðja við ungar stúlkur þar í landi sem standa höllum fæti í samfélaginu t.a.m vegna fátæktar, foreldramissis, barneigna og styrkja skólagöngu stúlkna.
Svo buðu norrænu sendiráðin í Kampala sendiherrum Afríkuríkja í borginni til hádegisverðar til að undirbúa fyrir fund utanríkisráðherra Norðurlanda og Afríkuríkja (NAFM) sem fer fram í Oslí 19. 20. nóvember.