10. Aðgengi að erlendum mörkuðum varið og bætt
| Aðgerðin er í vinnslu |
Staða aðgerðarinnar
Nóvember 2026: Fríverslunarviðræðum við Mercosur ríkin og Víetnam hefur verið lokið með gerð fríverslunarsamninga. Fríverslunarsamningurinn við Mercosur ríkin hefur verið fullgiltur af Íslands hálfu og er kominn til framkvæmda gagnvart Brasilíu og Úrúgvæ. Gildistaka gagnvart Argentínu og Paragvæ bíður fullgildingar í viðkomandi ríkjum. Fríverslunarsamningur við Víetnam hefur jafnframt verið undirritaður. Kynningarvinna á viðskiptatækifærum á Indlandsmarkaði hefur staðið yfir frá því fríverslunarsamningur við Indland gekk í gildi 1. október 2025, m.a. í samstarfi við Íslandsstofu. Hagsmunagæsla og þróun viðskiptasambandsins við Bandaríkin er viðvarandi forgangsverkefni íslenskra stjórnvalda. Vinna við endurskoðun viðskiptakjara við ESB hefur staðið yfir frá því um mitt ár 2025 og íslensk stjórnvöld hafa reglulega ítrekað vilja til að styrkja viðskiptasambandið við Grænland í góðu samráði við þarlend stjórnvöld. Framkvæmd fríverslunarsamningsins við Færeyjar er rædd með reglubundnu millibili milli íslenskra og færeyskra stjórnvalda.
Aðgerðin
Markmið aðgerðarinnar er að verja og bæta aðgang íslenskra útflytjenda að mörkuðum erlendis með markvissri hagsmunagæslu og þróun viðskiptasambanda.
Áhersla verður lögð á verkefni sem ætlað er að efla tvíhliða samskipti og ávinning af fríverslunarsamningum með hliðsjón af útflutningsstefnu stjórnvalda og atvinnulífsins, þar sem hagsmunir landsins kalla á sérstaka áherslu.
Á grundvelli samkomulags Íslands og Evrópusambandsins er stefnt að endurskoðun viðskiptakjara milli Íslands og ESB. Gætt verður að viðskiptahagsmunum gagnvart Bandaríkjunum og sótt fram á vaxandi mörkuðum, svo sem á Indlandi og í Mercosur-ríkjunum í Suður-Ameríku. Jafnframt verða viðskiptatengsl við Grænland og Færeyjar efld m.a. með gerð viðskiptasamnings við Grænland.
Tímarammi: 2026–2027.
Ábyrgðarráðuneyti: Utanríkisráðuneytið.
Framkvæmdaaðili: Utanríkisráðuneytið.
Samstarfsaðilar: Önnur ráðuneyti og fulltrúar atvinnulífsins.
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Aukum aðgengi að erlendum mörkuðum.
Áætlaður kostnaður: Innan ramma.
Afurð: Bætt viðskiptakjör; viðskiptasamningar.