5. Eflum hafrannsóknir fyrir sjávarútveg
| Aðgerðinni er lokið |
Staða aðgerðarinnar
Nóvember 2026: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Hafrannsóknarstofnun, rannsóknar- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna var samþykkt á Alþingi 30. apríl 2026. Lögin hafa þegar tekið gildi. Með þessu er lagaleg umgjörð Hafrannsóknastofnunar styrkt, skerpt er á kjarnahlutverki hennar og langtímastefna um rannsóknir fest í sessi. Jafnframt er nýsköpun og tækniþróun gerð að skýrum hluta af hlutverki stofnunarinnar með áherslu á aukna sjálfbærni, fjölbreytni og hagkvæmni í nýtingu auðlinda.
Aðgerðin
Markmið aðgerðarinnar er að styrkja laga- og stefnumótandi umgjörð Hafrannsóknarstofnunar og efla getu hennar til að sinna lykilhlutverki í sjálfbærri auðlindanýtingu.
Ráðist verður í heildarendurskoðun á hlutverki og umgjörð hafrannsókna með það að markmiði að skýra ábyrgð, styrkja rannsóknarinnviði og efla samþættingu rannsókna, tækniþróunar og atvinnustefnu. Sérstök áhersla verður lögð á að tryggja öfluga gagnaöflun, nýtingu nýrrar tækni og markvissa þekkingaruppbyggingu á sviði hafrannsókna. Með þessu verður vísindalegur grunnur ákvarðanatöku um nýtingu auðlinda efldur og þar með einnig samkeppnisstaða íslensks sjávarútvegs.
Tímarammi: Vor 2026.
Ábyrgðarráðuneyti: Atvinnuvegaráðuneytið.
Samstarfsaðili: Hafrannsóknastofnun.
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Auðlindir í allra þágu; Eflum vísindi og nýsköpun; Matvæli.
Áætlaður kostnaður: Innan ramma.
Afurð: Lagasetning.