9. Byggjum upp samkeppnishæfni skapandi greina

 Aðgerðin er í vinnslu

 

Staða aðgerðarinnar

Nóvember 2026: Sérstakur spretthópur vann að því að móta framkvæmd aðgerðarinnar. Meðal þess sem var skoðað voru  átaksverkefni eins og Skapandi Ísland, stefnumörkun stjórnvalda og Íslandsstofu sem og útgefnar stefnur fyrir hverja listgrein með áherslu á útflutningsaðgerðir. Einnig var til skoðunar umhverfi skapandi greina, þar á meðal regluverk sem snýr að útflutningi og tollum sem og sjóðaumhverfi listgreina. Tækifæri eru til að kanna mögulega vannýtt tækifæri innan samstarfsáætlana Evrópusambandsins.

Afurð spretthópsins var mat á samræmdum aðgerðaáætlunum (endurskoðuðum aðgerðum) skapandi greina og mat á átaksverkefnum sem eru í gangi. 

Aðgerðin er þvert á ólíkar listgreinar sem hefur kallað eftir heildstæðri yfirferð á þeim aðgerðum sem nú þegar eru til staðar með endurskoðun, forgangsröðun og mögulegar viðbætur að leiðarljósi. Tillögur spretthóps liggja fyrir og eru í skoðun. Aðgerðin er því enn í mótun og ekki hægt að segja til um gengi innleiðingar að svo stöddu.

Aðgerðin

Markmiðið er að auka útflutning og framleiðni í skapandi greinum með markvissri sókn á alþjóðamörkuðum.

Þrátt fyrir sterka stöðu Íslands í nýsköpun samkvæmt Alþjóðahugverkastofnuninni endurspeglast sá styrkur ekki í útflutningi skapandi afurða. Mótuð verður sértæk aðgerðaáætlun fyrir hverja grein, hvatar og fjárfestingarumgjörð styrkt og hrint í framkvæmd samræmdu markaðs- og útflutningsátaki í samstarfi við atvinnulífið og menningarstofnanir.

Tímarammi: 2026-2027.
Ábyrgðarráðuneyti: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið  
Samstarfsaðilar: Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Íslandsstofa og menningar- og listamiðstöðvar.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Aukum aðgengi að erlendum mörkuðum; Upplifun.

Áætlaður kostnaður: Innan ramma.

Afurð: Aðgerðaáætlanir. 

Var efnið hjálplegt?