19 febrúar 2025Menningarsjóður Íslands og Finnlands auglýsir eftir umsóknum Sjóðurinn veitir árlega styrki til einstaklinga, samtaka, félaga og stofnana vegna verkefna sem geta orðið til þess að efla samskipti milli Íslands og Finnlands á sviði menningar, lista, atvinnulífs og þjóðlífs almennt. . Frestur til að leggja inn umsóknir um styrki úr sjóðnum vegna þessa tímabils rennur út 31. mars 2025.
19 febrúar 2025Breyting á reglugerð um stjórnvaldssektir fyrir brot á efnalögum í samráðsgáttUmhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að breytingu á 14. gr. reglugerðar um stjórnvaldssektir fyrir brot á efnalögum, nr. 590/2018.
18 febrúar 2025Ministry for Foreign AffairsJoint Statement at the Security Council: High-level Open Debate
18 febrúar 202540 verkefni fengu styrki til rannsókna og nýsköpunar á sviði mannvirkjagerðarFjörutíu nýsköpunar- og/eða rannsóknarverkefni fengu í dag styrkúthlutun úr Aski – mannvirkjarannsóknasjóði. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, afhentu styrkina við hátíðlega athöfn í húsakynnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Um er að ræða úthlutun ársins 2024.…
18 febrúar 2025Rétt þjónusta á réttum stað – skýrsla starfshópsStarfshópur sem fjallað hefur um stöðu eins af meginmarkmiðum heilbrigðisstefnu um að veita rétta þjónustu á réttum stað, hefur skilað Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra skýrslu með niðurstöðum sínum og tillögum. Gylfi Ólafsson formaður starfshópsins ásamt fleiri fulltrúum hópsins kynntu ráðherra skýrsluna á fundi í ráðuneytinu í gær.
18 febrúar 20251251/2025. Úrskurður frá 18. febrúar 2025Mál þetta varðaði beiðni til Skattsins um upplýsingar um hverju mótshaldarar Þjóðhátíðarinnar í Vestmannaeyjum 2024 hefðu skilað í opinber gjöld. Skatturinn kvað að ekki lægi fyrir gagn með þessum upplýsingum og að ekki væri hægt að kalla það fram með einföldum skipunum í gagnagrunnum embættisins.…
18 febrúar 20251250/2025. Úrskurður frá 18. febrúar 2025Beiðni kæranda um aðgang að yfirliti úr málaskrá Garðabæjar yfir mál og gögn sem vörðuðu dóttur hans var synjað með vísan til þess að dóttir kæranda þyrfti sjálf að óska eftir aðgangi að yfirlitinu.…
18 febrúar 20251249/2025. Úrskurður frá 18. febrúar 2025Kærandi felldi sig ekki við svör Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. við spurningum sem hann beindi til félagsins vegna ráðningar framkvæmdastjóra félagsins. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál rakti að upplýsingaréttur almennings tæki til aðgangs að fyrirliggjandi gögnum sem varða tiltekið mál og aðgangs að tilteknum fyrirliggjandi gögnum.…
18 febrúar 20251248/2025. Úrskurður frá 18. febrúar 2025Deilt var um synjun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. á beiðnum kæranda um aðgang að upplýsingum um annars vegar hver hafi verið kostnaður félagsins vegna sálfræðiþjónustu fyrir starfsmenn þess á árinu 2023 og hins vegar hvort og þá hversu mörg skrifleg leyfi Herjólfur hefði gefið út til undirmanna félagsins til að stunda önnur launuð eða ólaunuð störf á sama ári.…
18 febrúar 20251247/2025. Úrskurður frá 18. febrúar 2025Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í tengslum við innkaup Happdrættis Háskóla Íslands á happdrættisvélum og öðrum tengdum vörum. Synjun Happdrættis Háskóla Íslands var byggð á því að gögnin vörðuðu bæði mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni lögaðila sem og samkeppnishagsmuni Happdrættis Háskóla Íslands.…
18 febrúar 2025Ný skýrsla WHO: Áframhaldandi einkasala ríkisins á áfengi er mikilvægt lýðheilsumálEinkasala ríkisins á áfengi er mikilvægur og árangursríkur hluti af áfengisstefnu Norðurlandaþjóðanna samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Norðurlöndin, að Danmörku frátalinni, eru öll með ríkiseinkasölu áfengis. Samkvæmt skýrslunni er heildarneysla áfengis mun minni hjá þessum þjóðum en í öðrum Evrópulöndum þar sem verslunin er frjáls.…
18 febrúar 2025Takmarkanir settar á útlitsbreytandi meðferðir með fylliefnumAlma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur staðfest nýja reglugerð sem kveður á um takmarkanir á útlitsbreytandi meðferðum með fylliefnum. Markmiðið er að tryggja öryggi þeirra sem undirgangast meðferð með fylliefnum sem er sprautað eða komið með öðrum hætti fyrir, í eða undir húð, í vöðva eða annan vef.
18 febrúar 2025Úrskurður nr. 143/2025Úrskurður kærunefndar útlendingamála nr. 134/2025, um staðfestingu á ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um vegabréfsáritun, er afturkallaður og lagt er fyrir nefndina að taka mál kæranda til meðferðar á ný.
18 febrúar 2025Styrkir félagasamtök um tæpar 90 m.kr. til verkefna á sviði heilbrigðisþjónustuAlma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur veitt 88,2 milljónir króna í styrki til félagasamtaka sem vinna að mikilvægum verkefnum á sviði heilbrigðismála í þágu tiltekinna hópa. Alls voru veittir styrkir til 34 verkefna og námu styrkfjárhæðir á bilinu 400.000 til 6.000.000 kr.
18 febrúar 2025Úrskurður nr. 146/2025Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um vegabréfsáritun til Íslands er staðfest.
18 febrúar 2025Úrskurður nr. 144/2025Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um vegabréfsáritun til Íslands er staðfest.
17 febrúar 2025Sala ríkisins á Íslandsbanka og erindi Arion banka um sameininguÍ kjölfar tilkynningar ríkisins sl. föstudag um fyrirhugað opið almennt útboð á hlut ríkisins í Íslandsbanka, birti Arion banki erindi til Íslandsbanka um áhuga sinn á viðræðum um sameiningu bankanna. Í erindinu kom m.a. fram að hluthöfum Íslandsbanka, þ.m.t. ríkinu, stæðu til boða hlutabréf í sameinuðum banka skv. tiltekinni aðferðafræði.
17 febrúar 2025Degi íslenska táknmálsins fagnað og tákn ársins 2024 tilkynntÍ tilefni dags íslenska táknmálsins 11. febrúar var haldin hátíðleg athöfn í Salnum, Kópavogi þar sem Sigrún Brynja Einarsdóttir ráðuneytisstjóri afhenti, fyrir hönd menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, viðurkenningu til RÚV fyrir stuðning sinn í þágu íslensks táknmáls. Stefán Eiríksson útvarpsstjóri tók á móti viðurkenningunni.…
17 febrúar 2025Úrskurður nr. 136/2025Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja kærendum um vegabréfsáritun til Íslands eru staðfestar.
17 febrúar 2025Úrskurður nr. 139/2025Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um vegabréfsáritun til Íslands er staðfest.
17 febrúar 2025Stafrænt Ísland tilnefnt til alþjóðlegra verðlaunaStafrænt Ísland er tilnefnt í tveimur flokkum alþjóðlegu verðlaunanna Future of Government Awards. Verðlaunin eru veitt árlega til stjórnvalda, tækniteyma og einstaklinga sem vinna að því að bæta opinbera þjónustu við almenning með þróun og innleiðingu stafrænna lausna.
17 febrúar 2025Aðgerðahópur skipaður um bráðaaðgerðir í húsnæðismálumInga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað aðgerðahóp um bráðaaðgerðir í húsnæðismálum og úrbætur til lengri tíma. Í hópnum sitja þrír þingmenn, einn úr hverjum stjórnarflokki, auk fulltrúa frá ráðuneytinu og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Hlutverk aðgerðahópsins er fyrst og fremst að kortleggja áskoranir í húsnæðismálum og leggja fram tillögur að aðgerðum.…
16 febrúar 2025Úkraína í brennidepli á öryggisráðstefnunni í MünchenÞorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti öryggisráðstefnuna í München sem lauk í dag, ásamt Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra.
16 febrúar 2025Ministry for Foreign AffairsJoint statement on the first anniversary of Alexei Navalny’s death
15 febrúar 2025Ministry of Finance and Economic AffairsFitch Affirms Iceland at ‘A’; Outlook StableFitch Ratings has affirmed Iceland's Long-Term Foreign-Currency Issuer Default Rating (IDR) at 'A' with a Stable Outlook.
15 febrúar 2025 Fitch staðfestir A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með stöðugum horfumLánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings hefur birt mat á lánshæfi ríkissjóðs. Lánshæfiseinkunn er óbreytt í A og horfur eru stöðugar.
14 febrúar 2025Ministry for Foreign AffairsStatements: 3rd Preparatory Committee for Financing for Development
14 febrúar 2025Öryggismál í Evrópu í brennidepli í MünchenVaxandi spenna í alþjóðamálum, öryggismál í Evrópu, stríðið í Úkraínu og horfur í alþjóðahagkerfinu eru á meðal þeirra mála sem rædd verða á hinni árlegu Öryggismálaráðstefnu í München sem sett var í dag og stendur fram á sunnudag.…
14 febrúar 2025Breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga kynntar í samráðsgáttDrög að frumvarpi til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.
14 febrúar 2025Hækkun veiðigjalds hreindýraJóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, hækkaði í vikunni gjald fyrir veiðar á hreindýrum fyrir veiðitímabilið í ár.
14 febrúar 2025Ministry of Finance and Economic AffairsPublic Offering of the Icelandic State’s Share in Íslandsbanki The Icelandic Government is preparing to sell its remaining stake in Íslandsbanki, approximately 42,5% of the bank’s shares, over the coming months. The sale will be conducted in accordance with Act no. 80/2024 and grants individuals priority in the offering.
14 febrúar 2025Opið almennt útboð á hlut ríkisins í Íslandsbanka Fyrirhugað er að selja eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka, um 42,5% hlutabréfa bankans, á næstu misserum. Salan fer fram með útboði þar sem almenningur hefur forgang samkvæmt lögum nr. 80/2024 sem samþykkt voru sl. sumar um ráðstöfun á eftirstandandi eignarhlut.
14 febrúar 2025Ísland styður við kyn- og frjósemisheilbrigði í ÚgandaÍsland er bakhjarl tveggja nýrra verkefna um kyn- og frjósemisheilbrigði í Úganda með sérstakri áherslu á tvö héruð í landinu. Verkefnin eru unnin í samstarfi við annars vegar sendiráð Hollands í Kampala og hins vegar alþjóðlegu félagasamtökin Ipas.
14 febrúar 2025Úrskurður nr. 130/2025Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um vegabréfsáritun til Íslands er felld úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar á ný.
14 febrúar 2025Sækir ráðherrafund OECD á sviði félagsmálaInga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, situr í dag ráðherrafund OECD á sviði félagsmála. Fundinn sækja félagsmálaráðherrar OECD-ríkjanna. Yfirskrift fundarins hefur sterka tengingu við áherslumál félags- og húsnæðismálaráðherra og nýrrar ríkisstjórnar: New Frontier for Social Policy: Investing in the Future.…
14 febrúar 2025Áform um sama gjald sjúkratryggðra fyrir röntgenmynd af brjóstum vegna krabbameinsleitarBirt hafa verið til umsagnar drög að reglugerð Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra um gjaldtöku fyrir röntgenmyndatöku af brjóstum (mammografia) vegna krabbameinsleitar.
14 febrúar 2025Prime Ministers OfficeNordic-Baltic leaders’ statement on UkraineNordic-Baltic leaders’ statement (Denmark, Estonia, Finland, Iceland, Latvia, Lithuania, Norway, Sweden, 14 February 2025)
14 febrúar 2025Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin ítreka stuðning við ÚkraínuLeiðtogar Norðurlandanna fimm og Eystrasaltsríkjanna þriggja hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu til stuðnings Úkraínu og segja þar að gera verði Úkraínumönnum kleift að verjast og standa af sér árásarstríð Rússa til að tryggja réttlátan og langvarandi frið.
14 febrúar 2025Úrskurður nr. 128/2025Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd er staðfest. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
14 febrúar 2025Ísland styður við verkefni um upprætingu kynfæralimlestinga kvenna í Síerra LeóneNýju samstarfsverkefni Íslands, stjórnvalda í Síerra Leóne og Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) um upprætingu á kynfæralimlestingum stúlkna og kvenna var formlega hleypt af stokkunum í sendiráði Íslands í Freetown á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynfæralimlestingum stúlkna og kvenna, þann 6. febrúar síðastliðinn.
14 febrúar 2025Úrskurður nr. 133/2025Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um vegabréfsáritun til Íslands er staðfest.
14 febrúar 2025Úrskurður nr. 131/2025Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, ásamt brottvísun og endurkomubanni, er staðfest.
14 febrúar 2025Úrskurður nr. 129/2025Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um vegabréfsáritun til Íslands er felld úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar á ný.
14 febrúar 2025Sjónum beint að þróun og aðgerðum að sviði gervigreindar í París Síðustu daga hefur verið mikil áhersla á gervigreind í París í tengslum við leiðtogafund um gervigreind sem fór fram dagana 10. – 11. febrúar. Fulltrúi Íslands á leiðtogafundinum var Logi Einarsson ráðherra menningar, nýsköpunar og háskóla
14 febrúar 2025Jónas Þór Guðmundsson og Brynjar Níelsson taka við embætti héraðsdómaraDómsmálaráðherra hefur skipað Jónas Þór Guðmundsson í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjaness frá og með 13. mars 2025. Ráðherra hefur jafnframt sett Brynjar Níelsson í embætti dómara með starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur frá 14. febrúar – 31. desember 2025.
14 febrúar 2025Nýtt verklag við val í stjórnir ríkisfyrirtækja Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur sett reglur um val á einstaklingum til stjórnarsetu í ríkisfyrirtækjum, sem eiga að tryggja að tilnefndir stjórnarmenn veljist á grundvelli hæfni, menntunar eða reynslu.
14 febrúar 2025Reglur um val og hæfniskröfur stjórna félaga í eigu ríkisins Viðauki 1 við almenna eigandastefnu ríkisins fyrir félög í eigu ríkisins: Reglur um val og hæfniskröfur stjórna félaga í eigu ríkisins
13 febrúar 2025Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu aukinn varnarbúnað og stuðning við ÚkraínuVarnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu aukinn varnarviðbúnað og fælingarmátt bandalagsins og stuðning bandalagsríkja við Úkraínu á ráðherrafundi sem lauk í Brussel í dag.…
13 febrúar 2025Ómissandi samfélagsinnviðum tryggðir varafjarskiptasamband við útlönd um gervihnettiRíkisstjórnin hefur samþykkt að fjármagna varafjarskiptaleið við útlönd um gervihnetti.
13 febrúar 2025Hækkun lágmarksverðs mjólkurVerðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur.
13 febrúar 2025Hreindýrakvóti ársins 2025Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið veiðiheimildir til hreindýraveiða, gjaldskrá veiðileyfa fyrir árið 2025 og skiptingu þeirra milli sveitarfélaga, að fengnum tillögum frá Náttúruverndarstofnun.
13 febrúar 2025Ný stjórn Menntasjóðs námsmanna og spretthópur um LÍNLogi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, hefur skipað fjóra fulltrúa í stjórn Menntasjóðs námsmanna. Samhliða nýrri skipun stjórnarinnar hefur ráðherra sett af stað spretthóp um endurskoðun reglna um endurgreiðslu námslána í námslánakerfi Lánasjóðs íslenskra námsmanna, forvera Menntasjóðsins.
13 febrúar 2025Frumvarp um Matsferil og ný samræmd próf lagt fyrir AlþingiÁsthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, lagði fram frumvarp um nýtt námsmat, Matsferil, fyrir Alþingi í gær. Matsferli er m.a. ætlað að koma í stað gömlu samræmdu prófanna sem voru hætt að þjóna sínum tilgangi. Í þeirra stað verða ný samræmd próf í íslensku og stærðfræði lögð fyrir í öllum grunnskólum skólaárið 2025–2026.
13 febrúar 2025Ministry for Foreign AffairsEU Statement on Russia’s war of aggression against Ukraine - OSCE Permanent Council No. 1508, 13 February 2025
13 febrúar 2025Hildur H. Dungal skipuð skrifstofustjóri á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmálaInga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað Hildi H. Dungal í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála. Hildur er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og hefur starfað á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála sem lögfræðingur frá árinu 2022 og staðgengill skrifstofustjóra frá árinu 2023.
13 febrúar 2025Mál nr. 563/2024-ÚrskurðurViðurlög. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði þar sem hann mætti ekki á boðaðan fund hjá stofnuninni.
13 febrúar 2025Mál nr. 588/2024-ÚrskurðurBótatímabil. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um eftirstöðvar bótatímabils. Kærandi hafði starfað í skemmri tíma en 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hún fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur og hafði því ekki unnið sér inn rétt til nýs bótatímabils.
13 febrúar 2025Mál, nr. 668/2024-ÚrskurðurFjárhagsaðstoð. Felld úr gildi ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð aftur í tímann. Mál kæranda ekki rannsakað með fullnægjandi hætti áður en ákvörðun var tekin í því.
13 febrúar 2025Kristín Ólafsdóttir ráðin aðstoðarmaður forsætisráðherraKristín Ólafsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra.
13 febrúar 2025Mál nr. 547/2024-ÚrskurðurLaunamaður. Almenn skilyrði. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur þar sem hún ákvað sjálf að draga úr starfshlutfalli sínu.
13 febrúar 2025Mál nr.1/2025-ÚrskurðurSértækur húsnæðisstuðningur. Staðfest ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um að synja umsókn kæranda um sértækan húsnæðisstuðning. Kærandi ekki búsettur í leiguhúsnæðinu.
13 febrúar 2025Farsælt samstarf Íslands og Póllands í jarðhitanýtinguÍsland og Pólland hafa átt farsælt samstarf við nýtingu jarðhita um árabil, m.a. undir hatti Uppbyggingarsjóðs EFTA, sem vilji er til að halda áfram.
13 febrúar 2025Opið fyrir umsóknir vegna þróunarverkefna búgreina, garðyrkju, sauðfjárræktar, nautgriparæktar og hrossaræktarAthygli er vakin á að umsóknarfrestur um þróunarverkefni búgreina er til 15. mars 2025. Auglýst er eftir umsóknum tvisvar á ári.
13 febrúar 2025Úrskurður nr. 96/2025Ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann kæranda, sbr. 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga, er felld úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar á ný.
13 febrúar 2025Nr. 101/2025 ÚrskurðurÁkvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Ítalíu er staðfest.
13 febrúar 2025Mál nr. 584/2024-ÚrskurðurMálefni fatlaðs fólks. Notendasamningur. Staðfest ákvörðun Garðabæjar um að synja umsókn kæranda um notendasamning. Lágmarksstuðningsþörf ekki náð.
13 febrúar 2025Uppgjör fjárfestingastuðnings 2024 í nautgriparækt og sauðfjárræktMatvælaráðuneytið hefur greitt út lokagreiðslu fjárfestingastuðnings í sauðfjár – og nautgriparækt vegna framkvæmda á árinu 2024.
13 febrúar 2025Hefur mælt fyrir fimm af 11 þingmálum sínum á AlþingiAlma D. Möller heilbrigðisráðherra mælti á Alþingi í gær fyrir tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum og aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Þar með hefur hún mælt fyrir fimm af þeim 11 þingmálum heilbrigðisráðherra sem eru á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar, þegar á fyrstu tveimur dögum þingsins.…
12 febrúar 2025Ministry for Foreign AffairsEU Statement on Russia’s war of aggression against Ukraine - OSCE Forum for Security Co-operation N°1097 Vienna, 12 February 2025
12 febrúar 2025Óskað eftir tillögum að endurskoðun fyrirkomulags eftirlitskerfis með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum Endurskoðun á fyrirkomulagi eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum er nú til umfjöllunar í Samráðsgátt stjórnvalda og er frestur til að skila inn umsögnum til 20. febrúar nk.
12 febrúar 2025Úthlutun styrkja til þróunarverkefna búgreina á árinu 2024Með hliðsjón af umsögnum fagráða úthlutaði matvælaráðuneytið rúmum 172 milljónum króna til 51 þróunarverkefnis á árinu 2024.
12 febrúar 2025Drög að frumvarpi dómsmálaráðherra um farþegaupplýsingar sett í SamráðsgáttDrög að frumvarpi dómsmálaráðherra um breytingar á lögum sem gera flugfélögum og öðrum farþegaflytjendum kleift að afhenda íslenskum yfirvöldum farþegaupplýsingar hefur verið lagt fram í Samráðsgátt.…
12 febrúar 2025Mál nr. 5/2025-ÚrskurðurKærufrestur. Kæru vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála þar sem hún barst að liðnum kærufresti. Ekki var talið afsakanlegt að kæran barst ekki fyrr eða að veigamiklar ástæður mæltu með því að kæran yrði tekin til meðferðar.
12 febrúar 2025Mál nr. 548/2024-ÚrskurðurOfgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins að synja umsókn kæranda um niðurfellingu á endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta. Ekki fallist á að tilefni sé til niðurfellingar endurgreiðslukröfunnar á grundvelli 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009.
12 febrúar 2025Mál nr. 36/2025-ÚrskurðurOfgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins að synja umsókn kæranda um niðurfellingu á endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta. Ekki fallist á að tilefni sé til niðurfellingar endurgreiðslukröfunnar á grundvelli 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009.
12 febrúar 2025Mál nr. 670/2024-ÚrskurðurUppbót á lífeyri. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja umsókn kæranda um uppbót á lífeyri. Tekjur kæranda voru umfram þau tekjumörk sem tilgreind eru í 11. gr. reglugerðar nr. 1200/2018 um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri.
12 febrúar 2025Jarðræktarstyrkir, landgreiðslur og tjónabætur vegna ágangs álfta og gæsaMatvælaráðuneytið afgreiddi skömmu fyrir áramót jarðræktarstyrki, landgreiðslur og tjónabætur vegna tjóns af völdum álfta og gæsa á ræktunarlandi bænda vegna ársins 2024. Styrkir vegna jarðræktar námu alls 473.260.084 kr. og 474.795.502 kr. vegna landgreiðslna, alls 948.055.586 kr.
12 febrúar 2025Mál nr. 95/2024-ÚrskurðurOfgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins að synja umsókn kæranda um niðurfellingu á endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta. Ekki fallist á að tilefni sé til niðurfellingar endurgreiðslukröfunnar á grundvelli 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009
12 febrúar 2025List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum á sviði barnamenningar List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum um listviðburði eða verkefni á sviði barnamenningar fyrir grunnskólabörn. Umsóknarfrestur fyrir skólaárið 2025 – 2026 er 16. mars 2025.
12 febrúar 2025Úrskurður nr. 124/2025Endurteknum umsóknum kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi, sbr. 35. gr. a laga um útlendinga nr. 80/2016, er vísað frá. Beiðni kæranda og barna hennar um frestun réttaráhrifa er hafnað.
12 febrúar 2025Úrskurður nr. 121/2025Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd er staðfest. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
12 febrúar 2025Ráðherra mælir fyrir frumvarpi vegna framkvæmda sem hafa áhrif á vatnshlot, þ.m.t. vegna Hvammsvirkjunar Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum og lögum um stjórn vatnamála.
12 febrúar 2025Málefni Úkraínu og norðurslóða í brennidepli á fundi utanríkisráðherra NorðurlandannaInnrásarstríð Rússlands í Úkraínu, staða mála þar og framtíðarhorfur, voru efst á baugi fjarfundar utanríkisráðherra Norðurlandanna sem fram fór í gær.…
12 febrúar 2025Úrskurður nr. 118/2025Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja kærendum og barni þeirra um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, ásamt brottvísun og endurkomubanni, eru staðfestar. Endurkomubann kærenda fellur niður fari þau frá Íslandi innan 15 daga.
11 febrúar 2025Ministry for Foreign AffairsJoint Statement in Support of the International Criminal Court (ICC)Joint Statement in support of the International Criminal Court (ICC) New York, 7 February 2025
11 febrúar 2025Aukin fjölbreytni á sviði menningar og tungumála í gervigreind með samstarfi Íslands og UNESCOLogi Einarsson menningar-, háskóla og nýsköpunarráðherra hefur undirritað viljayfirlýsingu um samstarf milli Íslands og UNESCO um að koma á fót alþjóðlegum samstarfsvettvangi sem mun stuðla að fjölbreytni á sviði menningar og tungumála í gervigreind.
11 febrúar 2025Ministry for Foreign AffairsIceland's Economic Outlook 2025 with Daði Már Kristófersson, Minister of Finance and Economic Affairs - RecordingRecording from the Iceland-Economic Outlook 2025 online meeting with Daði Már Kristófersson, Minister of Finance and Economic Affairs
11 febrúar 2025Saman gegn fordómum - nýtt verkfæriMennta- og barnamálaráðuneytið og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu kynna til leiks vefinn Saman gegn fordómum sem opnaði formlega fyrr í dag. Hlutverk hans er að fræða og vekja athygli á fordómum og hatursorðræðu í samfélaginu. Vefurinn býður upp á fjölbreytta fræðslu og verkfæri sem ætlað er að stuðla að aukinni vitund og skilningi meðal almennings.
11 febrúar 2025Ministry for Foreign AffairsOSCE conference against antisemitism - national statement (11.02.2025)
10 febrúar 2025Málþing um stafrænt kynbundið og kynferðislegt ofbeldi gegn konumMálþing um stafrænt kynbundið og kynferðislegt ofbeldi sem Ísland stóð fyrir í samstarfi við Finnland fór fram í Helsinki, dagana 6.-7. febrúar 2025.