Flutningskerfi raforku
Samkvæmt III. kafla raforkulaga annast Landsnet hf. meginflutningskerfi raforku og kerfisstjórnun þess. Landsnet skal byggja flutningskerfið upp á hagkvæman hátt að teknu tilliti til öryggis, skilvirkni, áreiðanleika afhendingar, gæða raforku og stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku. Fyrirtækið hefur eitt heimild til að reisa ný flutningsvirki.
Samkvæmt IV. kafla raforkulaga annast dreifiveitur dreifingu raforku á lægri spennu á tilteknum dreifiveitusvæðum. Í leyfi dreifiveitna felst einkaréttur og skylda til dreifingar raforku á viðkomandi svæði.
Með þingsályktun frá 2015 var samþykkt stefna stjórnvalda um lagningu raflína og ber Landsneti og dreifiveitum að taka mið af þeirri stefnu við gerð áætlana sinna um uppbyggingu á flutnings- og dreifikerfi raforku.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Raforkulög nr. 65/2003Reglugerð nr. 1040/2005 um framkvæmd raforkulagaÞingsályktun um stefnu stjórnvalda um lagningu raflínaKerfisáætlun Landsnets 2015-2024Umhverfis- og orkustofnunDreifiveitur
Hitaveita SuðurnesjaLandsvirkjunOrkubú VestfjarðaOrkuveita HúsavíkurOrkuveita ReykjavíkurRarikFlutningsfyrirtæki
LandsnetRaflínur í jörð - skýrslur
Lokaskýrsla nefndar um lagningu raflína í jörðÁfangaskýrsla nefndar um lagningu raflína í jörðRaflínur í jörð - FylgigögnRaflínur í jörð - UmsagnirVar efnið hjálplegt?