Hönnunarsjóður

Tekjustofn Hönnunarsjóðs er árlegt framlag sem Alþingi ákveður á fjárlögum. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs annast umsýslu sjóðsins skv. sérstökum samningi þar um við ráðuneytið.

Hlutverk hönnunarsjóðs er að efla þekkingu og atvinnu- og verðmætasköpun á sviði hönnunar og arkitektúrs með fjárhagslegum stuðningi og ráðgjöf. Sjóðurinn styrkir jafnframt kynningar- og markaðsstarf erlendis, sem stuðlar að auknum útflutningi íslenskrar hönnunar. Stjórn hönnunarsjóðs metur styrkhæfi umsókna og ákveður afgreiðslu þeirra.

Sjóðurinn starfar eftir reglum um hönnunarsjóð frá 13. febrúar 2013.

Sjá einnig

Var efnið hjálplegt?