Endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar
Á grundvelli laga nr. 43/1999 um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, með síðari breytingum, er unnt að fá endurgreitt 25% af framleiðslukostnaði vegna framleiðslu kvikmyndar eða sjónvarpsefnis á Íslandi. Jafnt innlendir sem erlendir aðilar geta sótt um endurgreiðslu. Hafi meira en 80% af framleiðslukostnaði fallið til hérlendis eru jafnframt endurgreidd 20% af þeim framleiðslukostnaði sem fellur til á hinu evrópska efnahagssvæði.
Umsókn um endurgreiðslu vegna kvikmyndagerðar
Kvikmyndamiðstöð Íslands hefur umsjón með endurgreiðslukerfi kvikmynda. Umsóknum um endurgreiðslu skal beina til Kvikmyndamiðstöðvar Íslands áður en framleiðsla kvikmyndar eða sjónvarpsefnis hefst hér á landi.
Nánar er kveðið á um skilyrði endurgreiðslu í reglugerð nr. 450/2017.
Nánari upplýsingar veitir Kvikmyndamiðstöð Íslands: endurgreidslur@kvikmyndamidstod.is
Sérstök þriggja manna nefnd fjallar um innkomnar umsóknir. Við afgreiðslu skal nefndin hafa að leiðarljósi að kvikmynd eða sjónvarpsefni stuðli að eflingu innlendrar menningar, eftir atvikum, með skírskotun til sögu lands og náttúru. Telji nefndin að umsókn fullnægi skilyrðum til þess að hljóta endurgreiðslu gerir hún tillögu til menningar- og viðskiptaráðherra um að veitt verði vilyrði fyrir endurgreiðslu. Ráðherra ákvarðar endurgreiðslur að fenginni tillögu nefndarinnar.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Lög um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi nr. 43/1999Ensk þýðing á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar nr. 43/1999Reglugerð um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi nr. 450/2017Ensk þýðing á reglugerð um tímabundnar endurgreiðslur nr. 450/2017Eyðublað, umsóknir og yfirlit
Verkefnamat - EYÐUBLAÐLeiðbeiningar fyrir umsóknirLýsing á stigagjöf verkefnamatsYfirlit um endurgreiðslur fyrri áraVar efnið hjálplegt?