PISA-könnunin
PISA er umfangsmikil alþjóðleg könnun á hæfni og getu 15 ára nemenda í lesskilningi, læsi á náttúruvísindi og læsi á stærðfræði. Sá aldur er valinn þar sem hann markar lok skólaskyldu í flestum löndum. PISA er skammstöfun fyrir enska heiti könnunarinnar Programme for International Student Assessment og er hún á vegum OECD.
Alls taka 81 þjóðþátt í könnuninni, þar af 37 aðildarríki OECD. Menntamálastofnun sér um framkvæmd rannsóknarinnar á Íslandi fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytisins.
Könnunin er lögð fyrir á þriggja ára fresti og í hverri könnun leysa nemendur verkefni í lesskilningi, læsi á stærðfræði og læsi á náttúruvísindi. Í hverri könnun er lögð sérstök áhersla á eitt sviðanna þriggja og megnið af verkefnum og spurningum eru af því sviði. Ísland hefur tekið þátt í PISA frá fyrstu könnun árið 2000 þegar 43 ríki tóku þátt.
Í PISA 2022 var áhersla lögð á að meta stærðfræðilæsi þátttakenda. Könnunin var lögð fyrir í mars og apríl á Íslandi, rúmlega 3300 nemendur tóku þátt og heildarsvarhlutfall var 80%.
Niðurstöður PISA - skýrslur
2022
Samantekt á niðurstöðum PISA 2022Íslenska skýrslan um PISA 20222018
Íslenska skýrslan um PISA 20182015
Íslenska skýrslan um PISA 20152012
Íslenska skýrslan um PISA 2012PISA 2012 Result: What Students Know and Can Do (Volume I)PISA 2012 Results: Excellence through Equity (Volume II)PISA 2012 Results: Ready to Learn (Volume III)PISA 2012 Results: What Makes Schools Successful? ( Volume IV)Samantekt helstu niðurstaðna frá OECD (summary) 2012Stutt samantekt OECD (snapshot) 2012Kenningarammi PISA 2012Var efnið hjálplegt?